Eldflaugum skotið að bandarískri herstöð í Írak Samúel Karl Ólason skrifar 3. mars 2021 08:32 Ain al-Asad herstöðin í Írak. AP/Nasser Nasser Minnst tíu eldflaugum hefur verið skotið að herstöð í vesturhluta Íraks þar sem bandarískir hermenn og írakskir halda til. Írakski herinn segir árásina ekki hafa valdið miklum skaða.
Upplýsingar um mögulegt mannfall liggja þó ekki fyrir en AFP fréttaveitan hefur heimildir fyrir því að verktaki við herstöðina, almennur borgari, hafi fallið. Eldflaugunum var skotið að Ain al-Asad herstöðinni í Anbarhéraði. Árásin er til rannsóknar hjá írakska hernum sem segir að skotstaðurinn hafi verið fundinn. Í síðustu viku gerðu Bandaríkin loftárás á sveit, sem studd er af yfirvöldum í Íran, á landamærum Íraks og Sýrlands. Sú árás var svar við eldflaugaárásum sveitar Írans í Írak gegn bandarískum hermönnum, þar á meðal einni við flugvöllinn í Irbil þar sem verktaki frá Filippseyjum dó. Sjá einnig: Einn dó og átta særðust í eldflaugaárás á herstöð Bandaríkjamanna AP fréttaveitan segir áhyggjur uppi um að Bandaríkin og Íran muni skiptast á árásum á næstunni, eins og gerðist í fyrra. Þá stigmögnuðust árásirnar upp í það að Bandaríkin réðu íranska hershöfðingjann Qassim Soleimani af dögum í loftárás í Bagdad. Þá stendur til að Páfinn heimsæki Írak um næstu helgi. Til stendur að hann ferðist víðsvegar um landið. Hér má sjá myndband af eldflaugum frá Íran lenda í Ain al-Asad herstöðinni í fyrra, eftir að Bandaríkin felldu Soleimani. Sama kvöld var farþegaflugvél frá Úkraínu skotin niður yfir höfuðborg Írans. Unprecedented view of 4 Iranian ballistic missiles salvo hit Ain Al Assad base in Iraq. pic.twitter.com/r2VgiD3BsM— Tal Inbar (@inbarspace) March 1, 2021
Bandaríkin Íran Írak Hernaður Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Sjá meira