„Þroskandi að láta bara egóið skreppa saman“ Stefán Árni Pálsson skrifar 2. mars 2021 11:32 Bjarni Benediktsson fer um víðan völl í þættinum. vísir/vilhelm Garðbæingurinn Bjarni Benediktsson hefur verið á þingi síðan 2003 og er í dag fjármála- og efnahagsráðherra Íslands. Bjarni er gestur vikunnar í Einkalífinu.
Bjarni Ben er farsæll stjórnmálamaður og hefur verið það í mörg ár. Hann er aftur á móti umdeildur eins og sést oft á tíðum á umræðunni á samfélagsmiðlum og einnig hjá andstæðingum hans í stjórnmálum. Bjarni segist hafa orðið reiður og svekktur á köflum þegar umræðan um hann er persónuleg og röng að hans mati. „Ég hef stundum sagt að vera í stjórnmálum í mjög langan tíma er eins og það sé verið að flysja af þér egóið. Ef þú ert mjög viðkvæmur fyrir sjálfum þér þá þolir þú mjög lítið. Þá ert þú alltaf að rekast utan í einhvern og fólk er stöðugt að nuddast utan í þitt egó. Af því leytinu til er það þroskandi að láta bara egóið skreppa saman og leyfa sjálfum sér að vera bara sá sem maður er.“ Hann segir að fólk geti vissulega haft sína skoðun en hann vilji aðeins vera sáttur við karlinn sem hann horfir á í speglinum. „Maður verður að sætta sig við það að þú stjórnar ekki því sem aðrir segja en það fólk skilgreinir þig heldur ekki. Eftir að menn átta sig á þessu sjá menn að það er ekki gott að vera með stórt egó. Þú þarft bara að vera trúr sjálfum þér og vita hvað þú lifir fyrir,“ segir Bjarni en umræðan hefst þegar um sex mínútur eru liðnar af viðtalinu.
Einkalífið Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira