Óöguð þjóð og brotakenndar sóttvarnir Vilhelm Jónsson skrifar 30. mars 2020 11:00 Furðu sætir hvernig staðið er að sóttvörnum og skimunum, sem eru ómarkvissar, seinlegar og mun líklegri til að breiða veiruna út með núverandi fyrirkomulagi. Mun eðlilegra hefði verið að þeir sem leituðu eftir sýnatöku á heilsugæslustöðvum, og eða í gegnum bílglugga við erfið veðurskilyrði, væri beint á ákveðna staði eins og um bifreiðaskoðun væri að ræða þar sem hliðarrúðan væri dregin niður og síðankeyrt beint í gegn. Með slíku fyrirkomulagi næðist miklu hraðari, markvissari og manneskjulegri sýnataka fyrir alla aðila. Eins og núverandi ástand hefur þróast á sóttvarnarspítala og gjörgæslu er orðið tímabært að þjóðin íhugi með hversu óábyrgum hætti spítalinn brást seint og illa við í undirbúningsferlinu við yfirvofandi vá, sé horft til janúar- og febrúarmánaðar. Engu að síður er til fyrirmyndar hvernig brugðist var við í mars þegar landlæknisembættinu varð loksins ljóst hversu alvarlegir atburðir væru í aðsigi eftir að almenningur hafði hamrað á því við embættið að ekki væri nóg að gert. Það er óboðlegt hjá yfirlækni Landspítalans í viðtali á Víglínunni að láta liggja að Kínverjar hefðu verið teknir í bólinu en allt væri slétt og fellt varðandi sóttvarnarspítala í Fossvogi, og þegar hann var spurður út í fjölda öndunarvéla þá hafði hann engar tölur um það. Slíkt hið sama átti sér stað hjá forstjóra Landspítalans þegar hann skautaði fram hjá spurningunni í beinni sjónvarpsútsendingu. Landsmönnum er að verða smám saman ljóst að ekki var brugðist við fyrr en alltof seint, og á kostnað þeirra sem leitað hafa eftir læknisþjónustu spítalans, þar sem flestallt er sett á bið. Því miður er margt sem bendir til þess að sá vandi aukist enn frekar á næstu mánuðum. Alltof oft er að koma í ljós hversu miklir vankantar eru á háttalagi landans varðandi reglur um samkomubann og aðrar þrengingar til varnar frekari útbreiðslu veirunnar, og það er nánast sama hvert litið er.Matvörubúðir, göngustígar, og svo má lengi, telja gefa vísbendingar um óviðunandi ástand, sé horft til hinnar svokölluðu tveggja metra reglu, ekki síst hjá þeim sem eru yngri, einnig er því áfátt að reglum sé fylgt eftir á vinnustöðum. Það getur aldrei náðst viðunandi árangur hjá óagaðri þjóð fyrr en mönnum er refsað með afgerandi hætti fyrir að brjóta lög, reglur eða tilmæli. Út um allan heim er refsiramma fylgt umsvifalaust eftir af fullri hörku. Þegar ekki mun draga úr útbreiðslu Covid-19 með jafn markvissum hætti og í nágrannalöndunum, sem við viljum bera okkur saman við, mun ólund landans smám saman aukast og snúast upp í andúð gegn svokölluðu teymi, ekki síst hjá þeim sem hafa látið hvað hæst hversu frábært þríeykið er. Þó svo dönsk heilbrigðisyfirvöld hafi hampað Íslendingum fyrir að skima mikið í byrjun og elta hugsanlegar smitleiðir hefur það ekkert með það að gera að Danir og fleiri þjóðir verði ekki fyrri til að hefta útbreiðslu Covid-19. Lokun landamæra og útgöngubann ásamt viðurlögum er skilvirkasta leiðin til að hefta útbreiðslu. Það er löngu orðið tímabært að sóttvarnarlæknir gefi út með skilmerkilegum hætti á hvaða vegferð hann er, og ekki svo ósjaldan hefur hann látið liggja að 60% þjóðarinnar þurfi að smitast til að mynda hjarðónæmi. Það er tiltölulega miklar líkur á að útbreiðsla veirunnar eigi eftir að stóraukast þar sem smitleiðir hripleka með núverandi háttalagi þar sem samfélagslegt athæfi og óábyrg háttsemi er alger og vart annað en barnaskapur að telja að hápunkti verði náð fyrir miðjan apríl eða fyrr. Einnig er það í íslenskum anda sem hingað til að berja sér á brjóst að telja sig vera mesta og besta í öllu, og svo er því yfirleitt þveröfugt farið þegar á reynir, og síðan kannast enginn við gjörðir sínar þegar misbrestir eiga sér stað. Icesave skuldauppgjörið er gott dæmi um flótta frá fyrri gjörðum sínum, og slíkt hið sama á við um undirbúningsferlið vegna faraldursins þar sem allt var gert á síðustu stundu. Þó svo um huglægt mat sé að ræða eru miklar líkur á því að Covid-19 ferlið eigi eftir að dragast á langinn og valda mörgum dauðsföllum og erfiðleikum, ekki síst hjá þeim eldri, sem þurfa að takast á við margra mánaða sóttvörn þegar yfir lýkur. Hræðilegar smitleiðir og óafturkræfar eru að eiga sér stað á Landakoti, fæðingardeild og víðar með skelfilegum hörmungum ef fram fer sem horfir. Óneitanlega fær maður á tilfinninguna á svokölluðum stöðufundum, sem einkennast af leiksýningu eða gorti, sem teymið er farið að láta stjórnast af, og er að verða hálf hallærislegt, ekki síst sé litið til þess að þúsundir manna munu líða fyrir óábyrgt verklag og undirbúningsleysi Landspítalans. Ef allt fer á versta veg mun örugglega ekki standa á svari að benda á að ábyrgð liggi annars staðar en í eigin garði og enginn mun sæta ábyrgð. Sóttvarnaferlið mun einkennist af smáskammtalækningum og að slökkva elda þegar smitvarnir bregðast. Sjúklingar munu láta lífið og líða fyrir slóðahátt. Í ljósi þessa væri landlækni nær að grynnka á rykföllnum skúffum, sem hafa að geyma vafasöm læknaverk undangenginna ára, í stað þess að baða sig í sviðsljósinu. Óviðunandi sóttvörnum er að fjölga þessa dagana sem sóttvarnarlæknir þarf að tækla með öðrum og meira afgerandi hætti og láta af einstrengslegum viðbrögðum sínum. Óafturkræf mistök eru að eiga sér stað vegna nýbyggingar við Hringbraut. Byggingartími mun lengjast verulega vegna legu spítalans og flutningsgetu umferðaæða. Verkferlinu er smám saman að seinka og verða breytingum háð með tilheyrandi hávaða, ráðaleysi og skömm þar sem enginn axlar ábyrgð. Valdasjúkt fólk sem og óábyrgt ber að stöðva, hver svo sem á í hlut og huga ber að heildarhagsmunum.Á sama tíma og Landspítalinn er í fjársvelti hafa milljarðar streymt eftirlitslítið úr ríkissjóði áratugum saman þar sem verkfræði- og arkitektastofur hafa makað krókinn vegna hönnunar á spítala og viðstöðulausra breytinga þar sem verkferlið er illgerlegt og vanhugsað. Enginn spyr um verklok og kostnað og sjúkir gjalda meðan verið er að finna upp hjólið. Stjórnvöld munu sverja af sér alla ábyrgð sem fyrr og eru að þessu sinni komin í feitt að vera komin með krumlurnar í gjaldeyrisforðasjóð Seðlabankans til að endurnýja umboð sitt. Drottinn blessi þá sem hverfa frá þessu jarðneska lífi og takast á við ómældar þjáningar vegna veruleikafirrtra manna vítt og breitt um stjórnsýsluna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Vilhelm Jónsson Mest lesið Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun