Andvaka vegna ástandsins Halldór G. Meyer skrifar 27. mars 2020 13:00 Ef ég væri móðir-náttúra, þá hefði ég líka hannað veiru sem dregur stórlega úr neyslu og hægir á hagvexi. Móðir náttúra veit að 3% hagvöxtur þýðir 3% samdráttur í náttúru. Móðir náttúra veit líka að náttúran grær um 2% á ári og þar af leiðandi yrði engin náttúra 100 árum síðar við viðvarandi 3% hagvöxt. Ég hefði líka komið henni fyrir í stórborg og séð til þess að hýslar beri hana á milli sín í þéttbíliskjörnum og valdi ótta með tilheyrandi snöggkólnun og hægjun . Veiran á ekki að hafa þann tilgang að útrýma hýslinum. Hún á að hafa þann tilgang að lífsmunstur og hegðun fólks verði ekki til þess að það útrými sjálfum sér. Um það hvort við séum á góðri leið með að útrýma okkur eru margir í miklum vafa. Jafnvel flestir. Það er erfitt að horfast í augun við staðreyndir. Það er ennþá erfiðara að breyta út af gömlum vana. Jafnvel ómögulegt. Sá sem þetta skrifar er bæði langt yfir meðaltali í mengandi neyslu og fastari en flestir í gömlum vönum. Staðreyndirnar eru bara það ógnvæginlegar að við lítum sem heild einfaldlega framhjá þeim. Það er staðreynd að uppsafnaður koltvísíringur er að hækka hitastig jarðar um 3-5 gráður fyrir 2050 eða eftir 30 ár. Sjávarmál mun sökkva ótal stórborgum víða um heim. Hvirfilbylir geysa á hverju ári sem áður birtust á 500 ára fremsti… Ok, ég ætla aðeins að stoppa upptalningu, lesandi góður, mér ber að afsaka ef ég skrifa í talstíl, en ætlunin er ekki heldur að skrifa fræðirit… Heldur flæði eins og það kemur út úr mér. Ég veit ekki hvar ég ætti að stoppa í þessari upptalningu. eyðing regnskóga í Amazon, bráðnun á svokölluðum permafrosti sem hjúpar botnlaust metan í jörðu á norðurhveli jarðar sem mun margfalda núverandi mengun ef hún sleppur út í andrúmsloftið, ofveiði og útrýming á mörgum dýrateundum og fl. og fl. Við erum gjörsamlega trylltir einnota umbúða-neyslu fíklar og stefnum á að gera jörðina okkar óbyggilega á innan við 70 árum. Við erum á 500 km hraða niður í svartholið. Hraðaukningin eykst um 100 km á ári og eftir 10 ár munum við sjá skilti sem á stendur ,,POINT OF NO RETURN”. Ef við hættum að fá okkur, þá leggst allt á hliðina. En allir eru að fá sér, eins og maðurinn sagði. Á ÉG að hætta að fá mér? Á ÉG að ganga um í lopapeysu og gömlum lufsum? Á ÉG að labba í vinnuna? Skólann? Á ÉG að hætta að fá Fréttablaðið inn um lúguna? Má ég ekki vera í nýjasta skíðagallanum? Fara í krús á skemmtiferðaskipi sem eyðir meiri olíu en allur bílafloti Íslendinga? Og það í hægagangi við bryggju? Það eru allir að fá sér. Staðreyndin er að við höfum 10 ár til að koma okkur úr Armani jakkafötnum og Boss skyrtunni og í ullarpeysuna. Við höfum minni tíma til að drepa skrímslin sem sólgra í sig risaeðlusafa og spúa út úr sér CO2. Mér findist allt í lagi að margfalda skatta á allt innflutt. Sérstaklega allt innflutt sem mengar. Eins og bensín og olía. Líterinn ætti að kosta 500 kr. í það minnsta. Á sama tíma ætti að vera ókeypis að setja metan í alla bíla. Ríkið borgar. Rafmagnsbílar niðurgreiddir meira. Álögur á bensín og díslelbíla stóraukið. Hálaunafólkið sem stjórna landina segja að það sé verið að gera fullt. Allskonar. Ég heyrði Katrínu Jakobs VG segja “Já en allir hinir eru að fá sér” í áramótaávarpi. Þá að það lægi ekkert svo mikið á af því að allar aðrar þjóðir flíti sér svo hægt í breytingar. Getur verið að helsta ástæðan fyrir því að við höfum ekki fundið vitsmunalíf á öðrum hnöttum að það eru allir búnir að útrýma sjálfum sér áður en tækniframfarir gera þeim það kleift að ná sambandi. Kannski er þetta bara fyrirfram innbyggt inní kerfið. Lífstími hverrar plánetu er… rétt áður en þau uppgötva aðrar vitsmunaverur í kringum sig.? Hvað á þá allt þetta fólk að gera ef við þurfum að búa við 1-2% hagvöxt eða jafnvel undir því? Verða ekki bara flestir atvinnulausir? Hvað með ef kvótinn komist aftur í eigur fólksins? Er þá ekki bara nóg til skiptana? Þurfum við ekki bara að sjá hvað ullarvafinn atvinnuleysingi í sauðskinnskóm tekur sér fyrir hendur? Gæti verið að eftir að vera orðinn leiður á öllu hangsi fari hann að gera eitthvað skapandi? Hanni forrit? Færi jafnvel að hreyfa sig? Hjóli í næsta póstnúmer? Fari í tjaldferðalag? Ekkert einbýlishús í eftirdragi? Getur verið að Covid-19 verði pillan sem móðir náttúri gaf okkur sem þjappaði okkur saman og bremsaði okkur niður áður en við þeyttumst framhjá skiltinu?. Að mankynið vaknaði loksins upp eftir 50 ára neyslufyllerí? Hvað ætli Feneyingum finnist um það að sjá loks til botns í síkjunum sínum eftir allan hryllinginn? Hvað ætli Shanghæingum finnist um bláa himininn sem þeir vakna upp við núna? Hvað ætli nýju-jórvíksbúum finnist um kyrrðina á Time Square og á Fifth Avenue? Þurfum við ekki að hugsa allt saman uppá nýtt? Sem einstaklingar, fjölskylda, hverfi, borg? Sem þjóð? Sem jörð? Væri ekki frábært ef Ísland væri í algjörum fararbroddi í umhverfismálum? Ef ekki Ísland, hverjir þá? Ég labba með hundinn minn framhjá ráðherrabústaðinum á hverjum degi. Daglegir fundir núna. Þar sitja einkabílstjórar og hlýja sér með bensín bílana í gangi. Ef ráðherrum er ekki alvara, á þá öllum öðrum að vera alvara? Þarf þetta ekki að byrja þarna? Á leiðtoganum sem mætir á Íslenskum orkugjafa? Eða jafnvel á hjóli? Strætó? Mig langar að leggja meira að mörkum. Miklu meira. Fljúga minna. Ferðast meira innanlands og helst á innlendum orkugjafa. Mig langar að labba alltaf í vinnuna, eða hjóla. Hoppa uppí ókeypis litla strætisvagna sem ganga fyrir metan sem ég get gengið að vísu að komi á 5 mín. fresti. Mig langar að minnka fatarkaup og nýta betur það sem ég á. Hætta að henda öllu og kaupa bara nýtt. Gera við. Ég vil ekki sjá að þessi veira verði til einskis. Ég vona að fólk sjái samhengið sem mér finnst ég vera að sjá. Að óvinir geti sameinast í baráttu, ekki við veiruna heldur við okkur sjálf. Ávana og venjur okkar sem heild. Góðar stundir og lifið heil. Höfundur er framkvæmdastjóri Stay ehf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Umhverfismál Mest lesið Við höfum ekki efni á norsku leiðinni Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Fólkið sem gleymdist í Grindavík Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun Hver er viðskiptalegur ávinningur af EES-samningnum? Sigurbjörn Svavarsson Skoðun Ríkisstjórn sem skeytir engu Diljá Matthíasardóttir Skoðun Styðjum þá sem bjarga okkur Jens Garðar Helgason Skoðun Opið bréf til hæstvirts innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, um íslensku og ábyrgð Nichole Leigh Mosty Skoðun Elsku ASÍ, bara… Nei Sunna Arnardóttir Skoðun Rússar pyntuðu og myrtu úkraínsku blaðakonuna Viktoriiu Roshchyna Erlingur Erlingsson Skoðun Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála Anna Klara Georgsdóttir Skoðun Gigtarmaí 2025 – Stuðlum að forvörnum, fræðslu og vitundarvakningu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ríkisstjórn sem skeytir engu Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála Anna Klara Georgsdóttir skrifar Skoðun Fólkið sem gleymdist í Grindavík Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Rússar pyntuðu og myrtu úkraínsku blaðakonuna Viktoriiu Roshchyna Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Á að sameina ÍSÍ og UMFÍ? Ómar Stefánsson skrifar Skoðun Elsku ASÍ, bara… Nei Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Gigtarmaí 2025 – Stuðlum að forvörnum, fræðslu og vitundarvakningu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Við höfum ekki efni á norsku leiðinni Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Sósíalistar á vaktinni í átta ár Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Styðjum þá sem bjarga okkur Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hver er viðskiptalegur ávinningur af EES-samningnum? Sigurbjörn Svavarsson skrifar Skoðun Embætti þitt geta allir séð Ragnheiður Davíðsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til hæstvirts innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, um íslensku og ábyrgð Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Hver á dómur að vera hjá ungmenni fyrir að fremja alvarlegt afbrot, jafnvel morð? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Sigursaga Evrópu í 21 ár Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Verkalýðshreyfingin, Dagbjört og ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Börnin á Gasa Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Myndir þú ráða fatlað fólk í vinnu? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Hvað ert þú að gera? Eiður Welding skrifar Skoðun Rauðir sokkar á 1. maí Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun 1. maí er líka fyrir fatlað fólk! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðshreyfingin á næsta leik í Evrópuumræðunni Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Á milli steins og sleggju Heinemann Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Heiðrum íslenska hestinn Berglind Margo Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Allir eiga rétt á virku lífi — líka fatlað fólk Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er kominn tími á Útlendingafrí? Marion Poilvez skrifar Skoðun Janus og jakkalakkarnir Óskar Guðmundsson skrifar Skoðun Jafnréttisbaráttan er brýnni en nokkru sinni fyrr Kolbrún Halldórsdóttir,Sunna Kristín Símonardóttir skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að vera þegar þú verður stór? Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Samtalið um dauðann veldur okkur óöryggi Ingrid Kuhlman skrifar Sjá meira
Opið bréf til hæstvirts innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, um íslensku og ábyrgð Nichole Leigh Mosty Skoðun
Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála Anna Klara Georgsdóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála Anna Klara Georgsdóttir skrifar
Skoðun Rússar pyntuðu og myrtu úkraínsku blaðakonuna Viktoriiu Roshchyna Erlingur Erlingsson skrifar
Skoðun Gigtarmaí 2025 – Stuðlum að forvörnum, fræðslu og vitundarvakningu Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til hæstvirts innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, um íslensku og ábyrgð Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Hver á dómur að vera hjá ungmenni fyrir að fremja alvarlegt afbrot, jafnvel morð? Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Jafnréttisbaráttan er brýnni en nokkru sinni fyrr Kolbrún Halldórsdóttir,Sunna Kristín Símonardóttir skrifar
Opið bréf til hæstvirts innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, um íslensku og ábyrgð Nichole Leigh Mosty Skoðun
Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála Anna Klara Georgsdóttir Skoðun