Ók drukkinn yfir tvö umferðarskilti og inn í garð Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. mars 2020 07:24 Mjög fámennt var í miðborginni í nótt, aðra helgina í samkomubanni. Vísir/vilhelm
Ökumaður, sem grunaður er um ölvunarakstur, ók bíl sínum utan í vegrið á sjöunda tímanum í gær, yfir tvö umferðarskilti og hafnaði að lokum inni í garði á höfuðborgarsvæðinu. Ökumaðurinn var vistaður í fangageymslu að lokinni sýnatöku. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvar á höfuðborgarsvæðinu óhappið varð, utan þess að það heyrir undir umdæmi lögreglu í Kópavogi og Breiðholti. Lögregla bókaði alls fimmtíu mál bókuð frá klukkan fimm í gær og þar til fimm í morgun. Alls voru fimm vistaðir í fangageymslu. Mjög fámennt var í miðborginni, að því er fram kemur í dagbók lögreglu, en margar tilkynningar eða kvartanir bárust um hávaða í heimahúsum. Árásarmenn réðust á mann fyrir utan skemmtistað í miðborginni á öðrum tímanum í nótt og veittu honum nokkra áverka í andliti. Vitni gátu gefið greinargóðar lýsingar árásarmönnum, sem voru farnir af vettvangi. Þá réðust nokkrir menn að einum utandyra í Kópavogi á öðrum tímanum. Málið er í rannsókn og frekari upplýsingar liggja ekki fyrir. Þá var karlmaður handtekinn fyrir heimilisofbeldi snemma á öðrum tímanum í umdæmi lögreglu í Kópavogi og Breiðholti. Hann var vistaður í fangageymslu. Umferðaróhapp varð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ skömmu eftir miðnætti þegar bifreið var ekið á ljósastaur. Ekki urðu slys á fólki en bifreiðin skemmdist, sem og ljósastaurinn. Ökumaðurinn er grunaður um ölvunarakstur en var látinn laus að lokinni blóðsýna- og skýrslutöku.
Lögreglumál Reykjavík Mosfellsbær Kópavogur Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira