Fjórir teknir af lífi vegna hópnauðgunarinnar í Delí Atli Ísleifsson skrifar 20. mars 2020 08:36 Akshay Thakur, einn árásarmannanna, leiddur í dómshúsið í Delí árið 2013. EPA
Fjórir karlmenn hafa verið teknir af lífi eftir að hafa verið dæmdir til dauða vegna hópnauðgunar og morðs í höfuðborginni Delí sem skók Indland árið 2012. BBC segir frá því að þeir Akshay Thakur, Vinay Sharma, Pawan Gupta og Mukesh Sing hafi verið teknir af lífi með hengingu í Tihar-öryggisfangelsinu í morgun. Eru þetta fyrstu aftökurnar í landinu frá árinu 2015. Málið vakti gríðarlega athygli í Indlandi og víða annars staðar á sínum tíma, en fórnarlambið lést af sárum sínum, nokkrum dögum eftir að hafa verið nauðgað af sex mönnum í strætisvagni sem var á ferð. Málið leiddi til að miklar breytingar voru gerðar á indverskum hegningarlögum hvað varðar nauðganir. Sjá einnig: Aftökudagur ákveðinn í víðfrægu nauðgunarmáli í Indlandi Fórnarlambið, sem var 23 ára nemi í sjúkraþjálfun, gekk undir nafninu Nirbhaya –Sú óttalausa – í indverskum fjölmiðlum þar sem ekki var hægt að nafngreina konuna samkvæmt indverskum lögum. Alls voru sex manns handteknir vegna árásarinnar. Einn þeirra, Ram Singh, fannst látinn í fangaklefa sínum í mars 2013 þar sem hann hafði svipt sig lífi. Annar hinna handteknu var sautján ára þegar árásin var gerð og var honum sleppt árið 2015 eftir að hafa afplánað þrjú ár í betrunarbúðum. Þrjú ár eru hámarksrefsing fyrir ungmenni á Indlandi. Hinir dæmdu áfrýjuðu dauðadómnum til Hæstaréttar landsins þar sem þeir sóttust eftir að dómnum yrði breytt í lífstíðardóm. Hæstiréttur tók það þó ekki til greina.
Indland Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira