Þrír greindust með kórónuveiruna í gær Atli Ísleifsson skrifar 28. desember 2020 10:51 Alls hafa um 5.700 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm Þrír greindust með kórónuveiruna í gær. Tveir voru í sóttkví við greiningu, en einn ekki.
Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Síðan hefur ekki verið uppfærð síðustu daga vegna hátíðardaga og sendi embætti landlæknis þess í stað út tilkynningar. Alls eru 25 nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af einn á gjörgæslu. Fyrir tæpri viku voru 24 á sjúkrahúsi og þar af einn á gjörgæslu. Tveir greindust smitaðir á landamærum í gær, báðir með virkt smit eftir fyrri landamæraskimun. 143 manns eru nú í einangrun og eru 239 í sóttkví. Þann 22. desember voru 149 í einangrun og 572 í sóttkví. Af þeim þremur sem greindust í gær greindust allir eftir svokallaða einkennasýnatöku. Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 27,8, en var 29,7 þann 22. desember. Þá er nýgengi landamærasmita nú 17,5, en var 15,5 þann 22. desember. Alls hafa 5.726 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 28 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins. Alls voru tekin 514 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 473 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin 25 sýni í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira