Kveðja frá Bergmálshelli 4a (jarðhæð) Ágústa Ágústsdóttir skrifar 26. desember 2020 07:02 Ég er náttúruverndarsinni. Hálendið og villt náttúran hefur frá upphafi bundið strengi sína við mig og allar þær kynslóðir sem alist hafa hér upp frá blautu barnsbeini. Þessi öfl tákna frelsið, kraftinn, sjálfstæðið og lýðræðið sem ólgar í æðum okkar. Vegna þess köllum við! Vegna þess hrópum við ! Vegna þess eigum við rödd ! Vegna þess er okkur annt um frelsi náttúrunnar og lýðræðisins ! Við erum verðir hálendisins. Og við mótmælum því að hálendinu verði breytt í stofnun, innan stofnunar, innan ráðuneytis, innan Alþingis. Við þurfum á óspilltu hálendinu að halda. Talað er um að stofnun hálendisþjóðgarðs sé tækifæri til að vernda þá þjóðargersemi og um leið verði til alveg nýir möguleikar til að upplifa náttúruna og byggja upp atvinnustarfssemi. Í því samhengi vilja sumir meina að við berum ábyrgð gagnvart heimsbyggðinni allri. Það er ótrúlegt að lesa svona yfirlýsingar því í þeim felst einmitt opinberun hræsninnar sem þess konar þjóðremba er. Hingað til hafa menn forðast að svara ýmsum grundvallarspurningum og skauta fram hjá þeim eins og atvinnumenn í listskautadansi. 1. Hvað verndar þjóðgarðurinn betur og umfram það sem núverandi fyrirkomulag gerir og getur? 2. Hverju er verið að bjarga og frá hverju? 3. Hvaða elda er verið að slökkva? 4. Hvað kallar á núna sem veldur því að þrýsta þarf þessu í gegn á mjög svo óeðlilegan hátt? 5. Hvernig breytist heimsástandið til hins betra ef við stofnum hálendisþjóðgarð? 6. Hvenær varð hálendi Íslands í ykkar huga að leikmun til að nota sem pólitískt vopn inn á Alþingi eins og það varði ekki þjóðina alla? Greining og samanburður á rekstri þjóðgarða annars vegar og þjóðlendna hins vegar liggur hvergi. Aldrei hefur umhverfisráðherra bent á einhverja vankanta í núverandi kerfi þjóðlendulaga hvort sem litið er til þjóðhagslegrar hagkvæmni eða náttúruverndar. Þeir sem hafa sýnt þá dirfsku að standa upp og mótmæla með rökum og málefnalegum hætti hefur verið mætt með miklum hroka þeirra sem virðast ekki þola öðrum að hafa aðra skoðun. Meðal annars er talað um „Öskurkeppni þeirra sem eru á öðru máli, sem eigi lítið annað sameiginlegt í málflutningi sínum en hávaðasamar fullyrðingar og dylgjur, með jafnvel beinum ósannindum og á köflum verulega ruddalegri orðræðu í garð hinna kurteisu og hógværu“ eins og Benedikt Sigurðarson skrifar af „einstakri hógværð“ í Kjarnann fyrir stuttu. Það hvernig hann skrifar er einmitt gott dæmi um hvernig málefnaleg umræða á alls ekki að líta út. Ég fordæmi ómálefnalegan málflutning, hvoru megin sem hann elur manninn. Og þegar skoðanir fólks byggjast meira á trúarbrögðum en rökstuddum málflutningi, þá má að mínu mati tala um hreinar öfgar. Og öfgar eru alltaf slæmar hvoru megin sem þær eru. Það er aldrei réttlætanlegt að mæta öfgum með öfgum. Sú útkoma verður alltaf slæm. Benedikt skrifar einnig að þetta sé „Eitt markverðasta málefni sitjandi ríkisstjórnar og eitt af fáum sem virðist halda fram almannarétti gagnvart sérhagsmunum valdastéttar, umsvifamanna eða fjárfesta.“ Í þessari setningu einni málast mjög skýr mynd sem sýnir öfga vs. öfga, þar sem þjóðinni sjálfri í sínu lýðræði er varpað fyrir borð og henni stillt upp sem fávísum minnihluta sem viti ekki hvað henni er fyrir bestu. Aldrei hafa Íslendingar verið meira meðvitaðir um nauðsyn náttúruverndar. Við eigum ekki að gefa það eftir að ríkisstofnun taki 1/3 af landi okkar á þeim forsendum að okkur sé ekki treystandi til að fara vel með það og auka þ.á.m. skattaálögur til muna til að geta mætt broti af þeim kostnaði sem slíkri stofnanavæðingu fylgir. Ég er mikill náttúruverndarsinni. Þess vegna vil ég ekki hálendisþjóðgarð. Stimpillinn einn og sér mun sjá til þess að fjöldi erlendra ferðamanna þangað mun margfaldast. Er það náttúruvernd ? Við sjáum hvernig þjóðgarðarnir á Íslandi eru, t.d. Þingvellir og Skaftafell. Náttúruperlur á suðurlandi eru margar hverjar niðurtroðnar og sjást sums staðar varla fyrir mannmergðinni. Ferðamenn sjálfir kvarta orðið yfir þessu. Íslendingar kvarta yfir þessu. Stýring ferðamanna er til skammar og endurspeglar algjört metnaðarleysi ráðamanna til að vernda náttúruna. Hvers vegna yrði hálendisþjóðgarður eitthvað öðruvísi ? Á að selja hálendið ferðamannaiðnaðinum til illra heilla ? Iðnaðurinn er nauðsynlegur og skapar miklar tekjur inn í þjóðarbúið. En er takmarkið að láta elska landið okkar til dauða ? Ef hálendisþjóðgarður verður stofnaður án þjóðaratkvæðagreiðslu mun það að mínu mati verða einn stærsti glæpur sitjandi ríkisstjórnar gagnvart lýðveldi þjóðar sem státar sig einmitt af því að standa þar fremst meðal jafningja. Bergmálshellirinn minn er bjartur, hlýr og fallegur. Þar er hátt og vítt til veggja og þangað eru allir velkomnir. Líka þeir sem hafa aðra skoðun en ég. Víðsýni ræður þar ríkjum þar sem þeir, er eiga erfitt með að sætta sig við að þeirra skoðun er ekki einráð verður sérstaklega boðið upp á hlýtt faðmlag. Því vísbendingar sýna að ekki sé vanþörf á því. Jóla- og nýárskveðjur frá Bergmálshelli 4a í Norðurþingi í N-Þingeyjarsýslu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hálendisþjóðgarður Umhverfismál Ágústa Ágústsdóttir Mest lesið Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar