Eins og allir aðrir en kráareigendur eigi að fá að halda gleðileg jól Kristín Ólafsdóttir skrifar 9. desember 2020 17:33 Arnar Þór Gíslason á fimm skemmtistaði í miðbænum, þar á meðal Lebowski á Laugavegi. Samsett Kráareigandi í miðbæ Reykjavíkur segist nú íhuga, líkt og fleiri veitingamenn og kráareigendur, að höfða mál gegn stjórnvöldum vegna sóttvarnaaðgerða síðustu vikur. Hann segir um mismunun að ræða og að svo virðist sem kráareigendur séu þeir einu sem ekki eigi að fá gleðileg jól.
Greint var frá því í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að allar líkur væru á að einhverjir úr veitingageiranum höfði mál á hendur stjórnvöldum á næstunni vegna sóttvarnaaðgerða. Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði hafa látið vinna lögfræðiálit og nokkrir kráareigendur og veitingahúsaeigendur hafa haft samband við lögmenn. Arnar Þór Gíslason er einn eigenda skemmtistaðanna Lebowski, Kalda bars, Dönsku kráarinnar, Irishman og English pub. Fjórir af stöðunum fimm hafa staðið lokaðir síðustu vikur. Arnar segir í samtali við Vísi að hann, líkt og fleiri veitingamenn og kráareigendur, íhugi nú að leita réttar síns gagnvart stjórnvöldum vegna lokananna. „Að sjálfsögðu höfum við verið að skoða allar leiðir í þessu. Og bara það að yfirvöld haldi að þau geti ákveðið það að ég fái að hámarki tvær milljónir í lokunarstyrk á mánuði gerir mann dálítið reiðan,“ segir Arnar. „Það er í rauninni staðan sem við erum að skoða og allir lögfræðingar sem við höfum talað við segja við okkur að þetta sé næstum gefið mál. En nema auðvitað að yfirvöld endurskoði styrkina eða bæturnar, eins og ég horfi á það, út af því að þetta dugar varla fyrir leigu og þá á eftir að borga allt annað.“ Og á hverju væri málið byggt? Er þetta það sama og líkamsræktarstöðvarnar hafa nefnt, jafnræðisreglu og slíkt? „Já, nema að við erum um tvö hundruð fyrirtæki, bara kráareigendur, og um sex hundruð veitingastaðir. Þetta er í rauninni bara það að ríkið haldi ekki að það geti komist upp með að loka á okkur og þvinga okkur og komi þá með almennilegar bætur sem meika sens. Að við séum ekki að borga laun og leigu fyrir lokað húsnæði.“ Fylgjast með gestum kaffihúsanna hafa gaman Arnar kveðst hafa verið vongóður um að geta opnað sína staði áður en nýju reglurnar sem taka gildi á fimmtudag voru kynntar. „Enda er gríðarleg mismunun að leyfa kaffihúsum að taka á móti gestum og drekka bjór á meðan við megum það ekki. Samt erum við að fylgja öllum sóttvörnum og takmörkunum til hins ýtrasta. Við þurfum bara að horfa út um gluggann á börunum þar sem fólk situr á kaffihúsunum og veitingastöðunum að drekka bjór og hafa gaman,“ segir Arnar. „Það eru greinilega bara barir og krár sem eiga ekki að eiga gleðileg jól, heldur allir aðrir í samfélaginu. Þannig að ég vil endilega nýta tækifærið og ítreka að ég óska öllum öðrum gleðilegra jóla fyrir hönd bara- og kráareigenda.“ Þá sér Arnar ekki fyrir sér að ástandið batni að neinu ráði fyrr en í vor. En sér hann fram á að reksturinn þrauki þangað til? „Við þurfum bara að lána fyrirtækjunum okkar og veðsetja eigin eignir, hús og bíla, til að halda þessu gangandi áður en maður fer endanlega í gjaldþrot. En við munum gera allt okkar til að halda höfði og eiga einhvern pening til að fara í málsókn,“ segir Arnar. „Ríkið er að gefa sér gríðarlega langan tíma að borga út lokunarstyrki og í rauninni skuldar fyrirtækjum margar milljónir.“ Sóttvarnayfirvöld hafa ítrekað sagt að mesta smithættan af kórónuveirunni sé meðal annars á krám og líkamsræktarstöðum. Þannig voru skemmtistaðir sagðir þungamiðja þeirra smita sem byrjuðu að greinast í september síðastliðnum.
Næturlíf Veitingastaðir Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Trump hækkar tolla á öll lönd Viðskipti erlent Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Atvinnulíf Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Viðskipti innlent Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Viðskipti innlent Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Samstarf Einn stofnenda ASOS fannst látinn Viðskipti erlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Prófessor slær á áhyggjuraddir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Sjá meira