Hættir í kjölfar ummæla um bandarísku kosningarnar Atli Ísleifsson skrifar 9. nóvember 2020 14:24 Mart Helme hefur gegnt embætti innanríkisráðherra Eistlands síðustu mánuði. AP
Mart Helme, innanríkisráðherra Eistlands og meðlimur hægri öfgaflokksins Ekre, hefur sagt af sér embætti í kjölfar umræðu um orð sem hann lét falla í lok síðustu viku þar sem hann efaðist um sigur Joes Biden í bandarisku forsetakosningunum. Sonur Helme, fjármálaráðherrann Martin Helme, hefur lýst yfir stuðningi við orð föður síns, en Mart Helme sagði í útvarpsviðtali um helgina að bandarísku kosningarnar hafi verið bæði ólýðræðislegar og einkennst af kosningasvindli. Helme sagði svo í morgun að það séu „lygar“ í eistneskum fjölmiðlum sem fá hann nú til að segja af sér. Ekkert sem hann hafi sagt hafi ekki verið sagt áður í bandariskum fjölmiðlum. Hann ætli sér þó að segja af sér til að veita ríkisstjórn landsins starfsfrið, en að enginn muni fá hann til þegja um skoðanir sínar. Í frétt finnska YLE segir frá því að varnarmálaráðherra Eistlands hafi minnst á að her Eistlands geri ráð fyrir að Bandaríkin tryggi landinu vernd. Helme telur þó að ummæli hans ógni ekki öryggi landsins. Kersti Kaljulaid Eistlandsforseti, Jüri Ratas forsætisráðherra og Urmas Reinsalu utanríkisráðherra hafa öll óskað Joe Biden til hamingju með sigurinn í forsetakosningunum og fordæmt ummæli feðganna Helme.
Eistland Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira