Ætti Solskjær að hvíla Harry Maguire í næstu leikjum? Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. október 2020 07:00 Maguire var rekinn af velli gegn Dönum á miðvikudagskvöld. Daniel Leal Olivas/Getty Images
Miðvörðurinn Harry Maguire átti vægast sagt slæman leik er enska landsliðið tapaði 0-1 fyrir Dönum á Wembley er liðin mættust í Þjóðadeildinni í fyrradag. Maguire fékk gult spjald eftir aðeins fimm mínútna leik. Þegar rétt rúmur hálftími var liðinn fór hann í glórulausa tæklingu á miðjum velli og fékk í kjölfarið sitt annað gula spjald og þar með rautt. Kórónaði þetta í raun slæma byrjun Maguire á tímabilinu. Þó svo hann hafi átt ágætan leik er England lagði Belgíu á Wembley þann 11. október þá hefur miðvörðurinn ekki átt sjö dagana sæla með félagsliði sínu Manchester United það sem af er tímabili. Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins, stendur með sínum manni en fjölmiðlar ytra eru flestir á því að Maguire sé ekki andlega klár í komandi tímabil. Það gæti farið svo - til þess að fá sem mest út úr leikmanninum á komandi mánuðum - að Ole Gunnar Solskjær, þjálfari Manchester United, þurfi að gefa Maguire frí frá æfingum og leikjum svo hann nái fyrri getu að nýju. Harry Maguire's performance genuinely one of the worst I've seen in an England shirt. Scarily bad. Excellent for Leicester, adequate for Man Utd last season, beyond awful so far this season. Looks totally frazzled by whatever happened in Mikonos. Needs a break.— Oliver Kay (@OliverKay) October 14, 2020 Maguire, sem er fyrirliði bæði Englands og Man Utd, hefur staðið vörnina í ensku úrvalsdeildinni þar sem Man Utd hefur fengið á sig 11 mörk í aðeins þremur leikjum til þessa. Í þó nokkrum markanna hefur Maguire litið skelfilega út. Það vorkennir eflaust enginn Maguire fyrir það að vera fyrirliði eins stærsta knattspyrnuliðs í heimi og byrjunarliðsmaður í enska landsliðinu. Það er hins vegar ljóst að frí – ef frí skyldi kalla – fyrirliðans og fjölskyldu hans í Grikklandi hefur tekið sinn toll andlega. Var Maguire handtekinn eftir að hafa farið út að skemmta sér með vinum og ættingum. Þar lenti Maguire upp á kant við óeinkennisklædda lögreglumenn á bar eftir að systur hans var byrlað ólyfjan. Í kjölfarið endaði Maguire á lögreglustöð þar sem grískir lögreglumenn eiga að hafa gengið í skrokk á honum og hótað að enda feril hans. Maguire hefur viðurkennd að hann óttaðist um líf sitt á þessum tímapunkti. Þetta er ekki lífsreynsla sem einhver gleymir svo glatt. Hann hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu í málinu. Thanks for everyone s support over the last week, I m pleased to have had my say and share the true version of events. Looking forward to getting on with life now and the season ahead with @ManUtd and @England. pic.twitter.com/99G1iVi0qh— Harry Maguire (@HarryMaguire93) August 28, 2020 Þessi skelfilega lífsreynsla ásamt því að hafa spilað 55 leiki fyrir Man United á síðustu leiktíð ásamt tíu leikjum fyrir enska landsliðið er líklega ástæða þess að Maguire er alveg tómur þessa dagana, bæði andlega og líkamlega. Maguire leið fyrir það að Ole Gunnar Solskjær, þjálfari Man Utd, treystir ekki öllum varnarmönnum sínum og því spilaði Maguire töluvert fleiri leiki en ella. Spilaði hann alla 38 leiki liðsins í ensku úrvalsdeildinni frá upphafi til enda á síðustu leiktíð. Tímabilið 2018/2019 lék Maguire með Leicester City og var frammistaða hans það góð að Man Utd festi kaup á honum fyrir 80 milljónir punda sumarið 2019. Þá lék hann aðeins 32 leiki í öllum keppnum. Tímabilið þar áður lék hann 44 leiki og fór í kjölfarið beint á HM. Maguire hefur vissulega áður leikið meira en 50 leiki á einu og sama tímabilinu. Þá lék hann með Sheffield United í ensku C-deildinni og var rétt yfir tvítugt. Hinn 27 ára gamli Maguire hefur hins vegar aldrei kynnst öðru eins álagi og því sem kemur með fyrirliðabandi Manchester United. Maguire í leik með Sheffield á sínum tíma.Birmingham Mail Síðasta tímabil ásamt ferðinni til Grikklands situr að því virðist enn í Maguire og það er ljóst að hann leikmaðurinn þarf nauðsynlega á fríi að halda. Það er einfaldlega spurning hvort Man Utd megi við því en liðið á leik í ensku úrvalsdeildinni nú um helgina og mætir svo Paris Saint-Germain þann 20. október í Meistaradeild Evrópu. Verður sá leikur sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Fótbolti Enski boltinn Tengdar fréttir Sjáðu umdeilda vítadóminn, brottrekstur Maguires og magnaða vörslu Schmeichels Danir gátu þakkað Christian Eriksen og Kasper Schmeichel fyrir sigurinn á Englendingum á Wembley í gær. 15. október 2020 13:01 Meira að segja Roy Keane finnur til með Maguire Roy Keane gagnrýnir viðbrögð Gareths Southgate, landsliðsþjálfara Englands, við brottvísun Harrys Maguire. 15. október 2020 09:01 Eriksen tryggði Dönum sigur á Wembley Annan leikinn í röð vinna Danir góðan sigur á erfiðum útivelli. Að þessu sinni var það 1-0 útisigur á Wembley þökk sé marki Christian Eriksen í fyrri hálfleik. 14. október 2020 20:35 Maguire með á ný eftir dóminn og félagi Gylfa fær tækifæri Harry Maguire er kominn á ný í enska landsliðshópinn eftir dóminn sem hann hlaut í Grikklandi en Mason Greenwood og Phil Foden voru ekki valdir eftir sóttkvíarbrot sitt á Íslandi. 1. október 2020 13:46 United ætlar ekki að fá miðvörð Slök frammistaða varnarmanna Manchester United í tapinu fyrir Crystal Palace á laugardaginn breytir engu um fyrirætlanir félagsins á félagaskiptamarkaðnum. 21. september 2020 11:30 Maguire heldur fyrirliðabandinu þrátt fyrir lætin í Grikklandi Harry Maguire verður áfram fyrirliði Manchester United á komandi leiktíð þrátt fyrir óeirðirnar í Grikklandi í sumar. 12. september 2020 16:30 Maguire óttaðist um líf sitt í Grikklandi Harry Maguire, fyrirliði Man. United, segist hafa óttast um líf sitt á Grikklandi en Englendingurinn lenti í áflogum þar á dögunum. 27. ágúst 2020 21:43 Maguire ekki lengur í enska hópnum sem kemur til Íslands Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, hefur dregið Harry Maguire úr enska landsliðshópnum. 25. ágúst 2020 19:26 Maguire fundinn sekur í þremur ákæruliðum Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, var í dag fundinn sekur í þremur ákæruliðum eftir að hafa verið handtekinn á grísku eyjunni Mykonos þar sem hann var í fríi með fjölskyldu sinni. 25. ágúst 2020 16:49 Maguire heldur fram sakleysi sínu Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, heldur fram sakleysi sínu en hann var handtekinn á grísku eyjunni Mykonos í síðustu viku. 22. ágúst 2020 14:30 Harry Maguire handtekinn í Grikklandi Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, er í sumarfríi í Grikklandi en það gengur ekki áfallalaust fyrir sig. 21. ágúst 2020 10:00 Mest lesið Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 105-104 | Lygilegar lokamínútur Körfubolti Skýrsla um Brynjar Karl: Geri tilraunir með börn og skorti fræðilegan grunn Körfubolti Hnefarnir látnir tala í Umhyggjuhöllinni Körfubolti Mark snemma leiks gerði gæfumuninn Fótbolti „Þetta er hreinn og klár glæpur“ Körfubolti TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum Íslenski boltinn Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“ Íslenski boltinn Gylfi valdið mestum vonbrigðum Íslenski boltinn Sigtryggur Arnar eignaðist strák rétt fyrir stórleik kvöldsins Körfubolti Uppgjörið: Haukar - Fram 25-24 | Orkufrekur eltingaleikur Handbolti Fleiri fréttir Arnór Borg í Vestra og Fram fann markmann Víkingur fær leikmann úr dönsku B-deildinni „Fannst við halda góðri stjórn á leiknum“ Upgjörið: Breiðablik - Fram 7-1 | Upprúllun í Kópavogi Uppgjörið: Víkingur R. - Þróttur R. 0-1 | Óheppilegt sjálfsmark skilaði gestunum sigri Hin þaulreynda Anna Björk heim í KR Mark snemma leiks gerði gæfumuninn Henríetta lánuð til Þór/KA Aftur heim í Stjörnuna eftir dvöl hjá FH Gylfi valdið mestum vonbrigðum Telma mætt aftur með gullhanskann í Breiðablik Fagnaði tvítugsafmæli í gær og lánaður til FH í dag Stærsti sigur KR á ÍA í deildarleik Sannfærðir um að FH verði í fallbaráttu Laugardalsvöllur tekur lit „Jæja Heimir, þú verður að hjálpa mér að enda þetta vel“ Draumur Brassa um Ancelotti að rætast Sjáðu vítin á Hlíðarenda, skrautleg mörk í Garðabæ og umdeilt mark Fram TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum Leeds sló eigið stigamet Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu „Þetta var erfitt og maður var aldrei rólegur“ Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“ „Ekki áhyggjuefni, þetta var bara hörkuleikur“ Uppgjörið: Fram - Afturelding 3-0 | Mosfellingum kippt niður á jörðina Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-1 | Jafntefli sanngjarnt þegar hvorugt lið sækir til sigurs Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-3 | Gott gengi Eyjamanna heldur áfram Dagur Örn sagður á leið til FH Leiksigur Wright vekur lukku Sjáðu mörkin: Endurkoma Stjörnunnar og mörkin hjá Val og FH Sjá meira
Sjáðu umdeilda vítadóminn, brottrekstur Maguires og magnaða vörslu Schmeichels Danir gátu þakkað Christian Eriksen og Kasper Schmeichel fyrir sigurinn á Englendingum á Wembley í gær. 15. október 2020 13:01
Meira að segja Roy Keane finnur til með Maguire Roy Keane gagnrýnir viðbrögð Gareths Southgate, landsliðsþjálfara Englands, við brottvísun Harrys Maguire. 15. október 2020 09:01
Eriksen tryggði Dönum sigur á Wembley Annan leikinn í röð vinna Danir góðan sigur á erfiðum útivelli. Að þessu sinni var það 1-0 útisigur á Wembley þökk sé marki Christian Eriksen í fyrri hálfleik. 14. október 2020 20:35
Maguire með á ný eftir dóminn og félagi Gylfa fær tækifæri Harry Maguire er kominn á ný í enska landsliðshópinn eftir dóminn sem hann hlaut í Grikklandi en Mason Greenwood og Phil Foden voru ekki valdir eftir sóttkvíarbrot sitt á Íslandi. 1. október 2020 13:46
United ætlar ekki að fá miðvörð Slök frammistaða varnarmanna Manchester United í tapinu fyrir Crystal Palace á laugardaginn breytir engu um fyrirætlanir félagsins á félagaskiptamarkaðnum. 21. september 2020 11:30
Maguire heldur fyrirliðabandinu þrátt fyrir lætin í Grikklandi Harry Maguire verður áfram fyrirliði Manchester United á komandi leiktíð þrátt fyrir óeirðirnar í Grikklandi í sumar. 12. september 2020 16:30
Maguire óttaðist um líf sitt í Grikklandi Harry Maguire, fyrirliði Man. United, segist hafa óttast um líf sitt á Grikklandi en Englendingurinn lenti í áflogum þar á dögunum. 27. ágúst 2020 21:43
Maguire ekki lengur í enska hópnum sem kemur til Íslands Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, hefur dregið Harry Maguire úr enska landsliðshópnum. 25. ágúst 2020 19:26
Maguire fundinn sekur í þremur ákæruliðum Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, var í dag fundinn sekur í þremur ákæruliðum eftir að hafa verið handtekinn á grísku eyjunni Mykonos þar sem hann var í fríi með fjölskyldu sinni. 25. ágúst 2020 16:49
Maguire heldur fram sakleysi sínu Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, heldur fram sakleysi sínu en hann var handtekinn á grísku eyjunni Mykonos í síðustu viku. 22. ágúst 2020 14:30
Harry Maguire handtekinn í Grikklandi Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, er í sumarfríi í Grikklandi en það gengur ekki áfallalaust fyrir sig. 21. ágúst 2020 10:00