Liverpool selur Brewster fyrir 23,4 milljónir punda Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2020 09:35 Rhian Brewster fagnar marki með Liverpool á undirbúningstímabilinu. Getty/John Powell
Ungur framherji Liverpool á að koma til bjargar í markaleysi Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni. Sheffield United hefur samþykkt að borga Liverpool 23,4 milljónir punda fyrir enska unglingalandsliðsmanninn Rhian Brewster en enskir miðlar eins og Guardian og BBC greina frá þessu. Þetta eru meira en fjórir milljarðar íslenskra króna. Liverpool hefur þó ekki alveg slitið tengslin við Rhian Brewster því hluti af samkomulaginu er að Liverpool getur keypt leikmanninn aftur á næstu þremur tímabilum. Liverpool fær líka fimmtán prósent af næstu sölu á Rhian Brewster. Sheffield United agree record £23.5m deal to buy Liverpool's Rhian Brewster https://t.co/RdukQEjg2A— Guardian sport (@guardian_sport) October 2, 2020 Rhian Brewster er tvítugur unglingalandsliðsmaður og margir héldu að hann yrði framtíðarframherji Liverpool liðsins. Það hefur hins vegar gengið illa hjá honum að vinna sér sæti í aðalliðinu. Rhian Brewster var í láni hjá Swansea í ensku b-deildinni á síðasta tímabili þar sem hann skoraði 11 mörk í 22 leikjum. Brewster lék aðeins fjóra leiki með Liverpool á síðasta tímabili og engan þeirra í ensku úrvalsdeildinni. Sheffield United have agreed a £23.5m deal to sign Liverpool's Rhian Brewster.More: https://t.co/DCq6NgTd7Y #bbcfootball #sufc #lfc pic.twitter.com/e9zemzIANN— BBC Sport (@BBCSport) October 2, 2020 Rhian Brewster klikkaði á víti í tapi Liverpool á móti Arsenal í leiknum um Samfélagsskjöldinn í lok ágúst. Mohamed Salah, Roberto Firmino og Sadio Mané eru fastmenn í framlínu Liverpool og þeir Divock Origi og Diogo Jota voru báðir á undnan honum í goggunarröðinni. Sheffield United þarf svo sannarlega á mörkum að halda en liðið hefur ekki skorað eitt einasta mark í fyrstu þremur leikjum tímabilsins.
Enski boltinn Mest lesið Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn Dagskráin í dag: Verður markamet efstu deildar karla bætt? Sport „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Sjá meira