Gunnar Dofri og Sverrir til Sorpu Atli Ísleifsson skrifar 24. september 2020 09:17 Gunnar Dofri Ólafsson og Sverrir Jónsson. Sorpa
Gunnar Dofri Ólafsson og Sverrir Jónsson hafa verið ráðnir til Sorpu á skrifstofu framkvæmdastjóra. Skrifstofan var stofnuð í kjölfar skipulagsbreytinga hjá Sorpu. Í tilkynningu segir að Gunnar Dofri taki við nýju starfi sérfræðings í samskiptum og samfélagsvirkni. „Í starfinu felast meðal annars samskipti við fjölmiðla, markaðsmál, fræðsla- og kynningarmál, ritstjórn á vef SORPU og samfélagsmiðlum auk stefnumótunar og áætlanagerðar. Sverrir tekur við nýju starfi sérfræðings í innkaupum. Í starfinu felast meðal annars ábyrgð á stefnumótun í innkaupum og sölu á vettvangi SORPU ásamt þróun og innleiðingu verklags er varðar innkaup og sölu. Sverrir hefur auk þess yfirumsjón með samningum og áhættugreiningu og utanumhald um UT birgja. Gunnar Dofri er lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað sem blaðamaður og samfélagsmiðlastjóri á Morgunblaðinu og mbl.is, fréttamaður á fréttastofu RÚV, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, stundakennari við lagadeild Háskóla Íslands og lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Gunnar er auk þess í meistaranámi við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Sverrir er vörustjórnunarfræðingur frá Háskóla Reykjavíkur með yfir 20 ára reynslu á sviði vörustjórnunar. Hann hefur starfað sem innkaupastjóri hjá Valitor, verkefnastjóri innkaupa hjá Isavia, í viðskiptastýringu Origo, framkvæmdarstjóri innflutnings og dreifingarsviðs Opinna kerfa sem og innkaupastjóri Opinna kerfa,“ segir í tilkynningunni, en þeir hafa báðir hafið störf.
Vistaskipti Sorpa Mest lesið Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira