Sigrún Sjöfn: Töluðum um að gera þetta sem lið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 20. september 2020 21:25 Sigrún Sjöfn Ámundadóttir fann sig vel í kvöld. vísir/bára
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, fyrirliði Skallagríms, var að vonum ánægð með sigur Skallagríms á Val í Meistarakeppni KKÍ í körfubolta í kvöld. Skallagrímur vann 74-68 sigur á Valskonum í Borgarnesi. „Leikurinn var kaflaskiptur, við erum tiltölulega nýkomnar allar saman þannig að við erum mjög ryðgaðar, það var greinilegt í upphafi leiks að þær voru betur slípaðar saman en við,“ sagði Sigrún en Valskonur voru með yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn í Fjósinu í kvöld. „Svo töluðum við saman í hálfleik og þetta gekk betur, við fórum að spila betur sem lið.“Það var greinilegt að það small eitthvað saman í hálfleiknum því Skallagrímskonur komu af miklum krafti inn í seinni hálfleikinn og settu 10 stig á fyrstu mínútunni. „Það small. Við vorum með aukasendinguna opna, það var svolítið um einstaklingsframtök og allir að reyna að sanna sig og sýna sig. Við töluðum saman um að hætta að líta í eigin barm og gera þetta sem lið.“ „Guðrún benti okkur á hvað væri opið og það small þarna fyrstu mínútuna. Svo duttum við aðeins niður aftur en það hafðist.“ Deildarkeppnin í Domino's deild kvenna hefst eftir aðeins þrjá daga og veitir sigurinn Sköllunum byr undir báða vængi. „Þetta gefur okkur sjálfstraust í tímabilið sem fram undan er, en þetta gefur okkur ekki neitt í deildinni,“ sagði Sigrún Sjöfn Ámundadóttir.
Dominos-deild kvenna Skallagrímur Tengdar fréttir Leik lokið: Skallagrímur - Valur 74-68 | Borgnesingar skelltu Íslandsmeisturunum Bikarmeistararnir höfðu betur gegn Íslandsmeisturunum í Meistarakeppni KKÍ í kvöld. 20. september 2020 20:59 Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira
Leik lokið: Skallagrímur - Valur 74-68 | Borgnesingar skelltu Íslandsmeisturunum Bikarmeistararnir höfðu betur gegn Íslandsmeisturunum í Meistarakeppni KKÍ í kvöld. 20. september 2020 20:59