Staðfest tilfelli nú orðin 161 talsins Eiður Þór Árnason skrifar 14. mars 2020 22:06 23 ný tilfelli hafa nú greinst frá því í gærkvöldi. Vísir/vilhelm
Fimm ný tilfelli af kórónuveirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómnum voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala nú í kvöld. Heildarfjöldi tilfella er því 161. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. 23 ný tilfelli hafa nú greinst frá því í gærkvöldi. Fyrr í dag höfðu alls 1.526 sýni verið rannsökuð vegna veirunnar og voru 1.255 manns í sóttkví. Á þriðja tímanum í dag höfðu greinst 31 annars stigs innlend smit og fimm þriðja stigs smit af þeim 156 sem þá höfðu greinst. Ekki liggja fyrir uppfærðar upplýsingar um innanlandssmit að svo stöddu. Í dag hækkaði sóttvarnarlæknir áhættumat fyrir Þýskaland, Frakkland og Spán, þar á meðal Kanaríeyjar, í ljósi útbreiðslu kórónuveirunnar í þeim löndum. Allir sem koma frá þeim svæðum er nú gert að fara í tveggja vikna sóttkví við heimkomu. Fyrir voru Kína, Íran, Suður Kórea, Ítalía og skíðasvæði í Ölpunum skilgreind sem áhættusvæði með mikla smitáhættu. Ástæða hækkunar á áhættumati er mikil fjölgun sýktra og alvarlega veikra í þessum löndum. Spánn, Þýskaland og Frakkland teljast því nú til hááhættusvæða.
Almannavarnir Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Fleiri fréttir Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Sjá meira