Liverpool getur orðið enskur meistari áður en liðið spilar næst í deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2020 08:30 Jürgen Klopp og lærisveinar hans gætu fagnað enska meistaratitlinum upp í stúku á laugardaginn. Getty/Visionhaus
Tap Manchester City á móti Manchester United í gær þýðir að Liverpool liðið er komið enn nærri fyrsta enska meistaratitlinum í þrjátíu ár. Liverpool vann sinn leik um helgina en City tapaði sem þýðir að forskotið jókst um þrjú stig. Liverpool hefur nú 25 stiga forystu á Manchester City þegar City liðið á aðeins eftir tíu leiki. Það eru því enn bara 30 stig eftir í pottinum hjá lærisveinum Pep Guardiola. Ekkert annað lið í ensku úrvalsdeildinni getur náð Liverpool að stigum.Liverpool can now win the Premier League title without kicking another ball. Here's why https://t.co/YA0wx20Nio#bbcfootball#LFCpic.twitter.com/sxhixvV2Pi — BBC Sport (@BBCSport) March 8, 2020Manchester City liðið á eftir að spila tvo deildarleiki áður en kemur að næsta deildarleik Liverpool sem er á móti Everton á Goodison Park á mánudaginn eftir rúma viku. Manchester City fær Arsenal í heimsókn á miðvikudaginn og tekur síðan á móti Burnley á laugardaginn. Tapi City liðið báðum þessum leikjum þá verður Liverpool enskur meistari í sófanum á laugardaginn en tapi Manchester City öðrum leiknum þá getur Liverpool tryggt sér titilinn með sigri á heimavelli nágranna sinna í Everton eftir nákvæmlega eina viku. Liverpool vantar bara þessi sex stig og skiptir þar engu hvort þau koma í gegnum stigum sem Liverpool liðið fær eða í gegnum stig sem Manchester City missir af. Næstu leikir Liverpool á eftir Everton leiknum eru á móti Crystal Palace á heimavelli og á móti Manchester City á útivelli. Liverpool fær því mörg tækifæri til að tryggja það að leikmenn Manchester City þurfi að standa heiðursvörð fyrir leik City og Liverpool þann 5. apríl næstkomandi.
Enski boltinn Mest lesið Hamilton segir Ferrari þurfa nýjan ökumann því hann sé gagnslaus Formúla 1 „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Íslenski boltinn Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum Íslenski boltinn United tilbúið að tapa miklu á Højlund Enski boltinn Bein útsending: Dagur þrjú á heimsleikunum í CrossFit 2025 Sport Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Körfubolti Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son Enski boltinn „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Liðin sem verða að gera betur á markaðnum Sænska landsliðskonan Zigiotti til liðs við Rauðu djöflana Sjáðu mörkin fjögur hjá United í nótt Arsenal skoraði ekki og tapaði í fyrsta leik Gyokeres Fjórtán er vinsælasta númer sumarsins Eigendur Liverpool eyða meira í Isak en í að kaupa fótboltafélag í Madrid Sjá meira
Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig Íslenski boltinn
Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig Íslenski boltinn