Eiður Smári sagði að sóknarleikur Man. City væri eins og kynlíf án fullnægingar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2020 07:45 Pep Guardioal hugreystir Raheem Sterling eftir leik en til hægri er Eiður Smári Guðjohnsen. Samsett/Getty
Eiður Smári Guðjohnsen var mjög sérstaka myndlíkingu þegar hann var beðinn um að lýsa sóknarleik Manchester City liðsins eftir 2-0 tap á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær. Eiður Smári var gestur Tómasar Þórs Þórðarsonar í þættinum Vellinum á Símanum sport þar sem farið var yfir frammistöðu ensku meistaranna á Old Trafford í leiknum. Manchester City var miklu meira með boltann í leiknum og þá sérstaklega í fyrri hálfleiknum þar sem liðið náði engu að síður aðeins einu skoti á markið og það kom hjá Raheem Sterling eftir tíu mínútu. „Ég veit ekki hvort ég eigi að þora að segja það. Þetta virkar svolítið eins og kynlíf án þess að fá fullnægingu hvernig þeir spila,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen og hélt áfram: „Það vantar svolítið það sem þetta snýst um sem er að búa til færin. Þeir þurfa að keyra meira á markið. Þetta er rosalega flott og þeir halda boltanum rosalega vel og hreyfa sig skemmtilega í kringum hvern annan. Það vantaði bara aðalatriðið,“ sagði Eiður Smári. Eftir tapið á móti nágrönnum sínum í Manchester United er Manchester City búið að tapa sjö deildarleikjum á tímabilinu og er nú 25 stigum á eftir Liverpool. Liðið hefur samt skorað 68 mörk í 28 leikjum eða fleiri mörk en öll önnur lið deildarinnar, þar á meðal Liverpool (66 mörk).
Enski boltinn Mest lesið Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Fótbolti „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Íslenski boltinn Hato mættur á Brúnna Enski boltinn Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Enski boltinn Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Enski boltinn Partey á leið til Villareal þrátt fyrir nauðgunar ákærur Fótbolti „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Íslenski boltinn „Dómur af himnum ofan“ Íslenski boltinn Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ Íslenski boltinn Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Liðin sem verða að gera betur á markaðnum Sænska landsliðskonan Zigiotti til liðs við Rauðu djöflana Sjáðu mörkin fjögur hjá United í nótt Arsenal skoraði ekki og tapaði í fyrsta leik Gyokeres Fjórtán er vinsælasta númer sumarsins Eigendur Liverpool eyða meira í Isak en í að kaupa fótboltafélag í Madrid Sjá meira