Erlingur hótaði dómurum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. febrúar 2020 23:30 Erlingur á hliðarlínunni sem þjálfari ÍBV í Olísdeild karla. Vísir/Daníel
Dómstóll EHF, Evrópska handknattleikssambandsins, sektaði tvo meðlimi hollenska handbolta landsliðsins fyrir óviðunandi og óíþróttamannslega hegðun gagnvart dómurum EHF. Annar þeirra var Erlingur Richardsson, þjálfari liðsins. Atvikin áttu sér stað á meðan, og eftir, Holland atti kappi við Slóveníu þann 14. apríl 2019 en upprunalega greindi vefsíðan Euro Handball frá. Haarm Weerman og Erlingur Richardsson, þjálfari hollenska landsliðsins, gagnrýndu frammistöðu dómara leiksins harðlega. Gekk Erlingur svo langt að hóta dómurum leiksins því að birta myndband af frammstöðu þeirra á samfélagsmiðlum. Dómstóll EHF dæmdi á endanum Weerman og Erling seka um óviðeigandi sem og óíþróttamannslega framkomu gagnvart dómurm leiksins og sektaði þá báða um 750 evrur. Þetta sló hvorki Erling né hollenska landsliðið út af laginu en hann stýrði liðinu á sitt fyrsta stórmót frá upphafi er liðið komst á EM 2020 sem fram fór nú síðastliðinn janúar. Lentu þeir í C-riðli með Spánverjum, Þjóðverjum og Lettum. Töpuðu þeir gegn tveimur fyrstnefndu liðunum en unnu sannfærandi sigur á Lettum, 32-24. Liðið endaði í 17. sæti EM. Fréttin hefur verið uppfærð.
Handbolti Mest lesið Hamilton segir Ferrari þurfa nýjan ökumann því hann sé gagnslaus Formúla 1 Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Sport Þessir þurfa að heilla Amorim Enski boltinn Marta mætti og bjargaði Brasilíu Fótbolti „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Íslenski boltinn Ísland mátti þola stórt tap Körfubolti Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu Handbolti Brynjólfur Andersen með tvö gegn Wrexham Fótbolti Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Enski boltinn Fleiri fréttir Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Sjá meira