Bryndís Ísfold landaði eftirsóttu starfi hjá Orkuveitunni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. janúar 2020 15:44 55 sóttu um stöðuna sem auglýst var í október.
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Samskipta og samfélags hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar kemur fram að einingin sé ný og hlutverk hennar er að sjá um samskipta- og markaðsmál hjá samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur. Auk móðurfélagsins tilheyra henni dótturfyrirtækin Veitur, Orka náttúrunnar, Gagnaveita Reykjavíkur og CarbFix. Bryndís er með BA gráðu í stjórnmálafræði og BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Þá lauk hún meistaragráðu í herferðastjórnun frá Fordham University í New York. Síðustu tvö árin hefur hún starfað sem ráðgjafi og við stjórnendaþjálfun hjá ráðgjafafyrirtækinu Aton.JL, meðal annars fyrir fyrirtæki innan samstæðu OR. Þá er hún aðjúnkt við Háskólann á Bifröst og kennir nemendum í Miðlun og almannatengslum við skólann. Bryndís Ísfold bjó og starfaði í Bandaríkjunum í fimm ár þar sem hún vann sem ráðgjafi fyrir frambjóðendur og félagasamtök, meðal annars á sviðum umhverfismála og mannréttindamála. Áður en hún fluttist utan starfaði hún hér á landi við almannatengsl og blaðamennsku. Bryndís var varaborgarfulltrúi og sat í ýmsum ráðum og nefndum hjá Reykjavíkurborg til ársins 2009 og gegndi starfi framkvæmdastjóra Já Ísland í rúm tvö ár. Starf forstöðumanns Samskipta og samfélags hjá OR var auglýst í október síðastliðnum og sóttu 55 um. Bryndís hefur störf um næstu mánaðamót.
Vistaskipti Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira