Tólf uppáhalds bækur Jeff Bezos sem stjórnendur geta lært af Rakel Sveinsdóttir skrifar 7. ágúst 2020 11:00 Forstjóri Amazon, Jeff Bezos, segir stjórnendur geta lært mikið af bókum um fólk og ævisögur. Vísir/Getty
Það virðist ekkert lát á velgengni Jeff Bezos, eiganda Amazon, sem sagður er ríkasti maður veraldar í dag. Í miðjum kórónufaraldri tilkynnti félagið 40% söluaukningu á öðrum ársfjórðungi ársins. Margir renna hýru auga til stjórnunaraðferða Bezos sem sumir dást að en aðrir deila um. Uppáhalds bók Jeff Bezos fjallar ekkert um stjórnun heldur ævi bryta sem var uppi á tímum heimstyrjaldarinnar síðari en þar segir frá ástum, óróatímum, missi og fleira. Sjálfur hefur Bezos gefið upp lista tólf bóka sem hann segir í uppáhaldi hjá sér því þetta séu bækur sem stjórnendur geta lært mikið af eða fólk lesið fyrir starfsferil sinn. Það sem vekur athygli er að margar þessara uppáhaldsbóka Bezos koma stjórnun ekkert við. Til dæmis segir Bezos uppáhaldsbókina sína vera The Remains of the Day eftir Kazuo Ishiguro eða Dreggjar dagsins eins og hún heitir í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar. Sagan segir frá enska yfirþjóninum Steve sem stendur á tímamótum eftir að lávarðurinn hans fellur frá. Hann fer í sex daga ferðarlag og á þeirri vegferð rifjar hann upp liðna tíma og kemur sagan því inn á marga mannlífsþætti eins og aldur, missi, ástir og óróatíma Um bókaáhuga Bezos var meðal annars skrifað um í bók um Bezos og Amazon sem metsöluhöfundurinn Brad Stone skrifaði árið 2013 og eins í nýlegri grein Business Insider. Bókalistinn er í heild sinni eftirfarandi: The Remains of the Day eftir Kazuo Ishiguro Sam Walton: Made in America eftir Sam Walton Memos from the Chairman eftir Alan Greenberg The Mythical Man-Month eftir Frederick P. Brooks yngri. Good to Great: Why Some Companies Make the Leap… and Others Don't eftir Jim Collins Built to Last: Successful Habits of Visionary Companies eftir Jim Collins Creation: Life and How to Make It eftir Steve Grand The Innovator's Dilemma" eftir Clayton Christensen The Goal: A Process of Ongoing Improvement eftir Eliyahu Goldratt Lean Thinking: Banish Waste and Create Wealth in Your Corporation eftir James Womack og Daniel Jones Data-Driven Marketing: The 15 Metrics Everyone in Marketing Should Know eftir Mark Jeffery The Black Swan" eftir Nassim Taleb
Góðu ráðin Stjórnun Mest lesið Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Viðskipti innlent Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Viðskipti innlent Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Viðskipti innlent „Verið að auglýsa öryggi sem er falsöryggi“ Neytendur Að umbreyta fómó í jómó um verslunarmannahelgina Atvinnulíf Forstjóraskipti hjá Ice-Group Viðskipti innlent Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Viðskipti erlent Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Viðskipti innlent Fékk ekki að lækka afborganir því hún komst ekki í gegnum greiðslumat Neytendur Fleiri fréttir Að umbreyta fómó í jómó um verslunarmannahelgina Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Í vinnutengdri ástarsorg Að líða ömurlega í andrúmslofti jákvæðrar sálfræði Nýtt trend: Sami stjórnandinn að vinna fyrir mörg fyrirtæki Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Um forvitna yfirmanninn Þegar gott slúður í vinnunni gerir gagn Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Sjá meira