Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Rakel Sveinsdóttir skrifar 17. ágúst 2026 07:03 Sól og gott veðurfar einkennir þau lönd sem tróna á toppnum sem bestu löndin fyrir útlendinga að flytjast á sem vilja starfa í fjarvinnu eða velja sér búsetustað erlendis á eftirlaunatímabilinu og fleira. Vísir/Getty Í kjölfar Covid erum við orðin vanari því að heyra um fólk sem starfar í fjarvinnu; velur sér búsetu einhvers staðar í heiminum óháð staðsetningu vinnuveitanda.
Á ensku er talað um expat‘s, eða þann sístækkandi hóp fólks sem velur sér búsetu erlendis, án þess að starfið þeirra sé á staðnum. Í mörgum tilfellum þýðir þetta að fólk starfar í fjarvinnu að heiman en í sumum tilfellum þýðir þetta til dæmis fólk sem er hætt að vinna en velur að búa erlendis. Frá árinu 2014 hefur verið gerð viðamikil könnun um hvaða lönd eru best fyrir þennan hóp fólks að koma sér fyrir í. Hvort heldur sem er með tilliti til lífsgæða, hversu auðvelt er að koma sér fyrir, verðlags eða annars. Topp tíu listi Expat Insider 2026 er sem hér segir: 1. Panama2. Mexíkó3. Taíland4. Sameinuðu arabísku furstadæmin5. Brasilía6. Spánn7. Singapúr8. Portúgal9. Malasía10. Lúxemborg Könnunin fór fram 1. febrúar – 31. mars 2026. Svarendur voru 7.786 einstaklingar sem búsettir eru erlendis miðað við skilgreiningu „expat“ og af 162 þjóðernum. Athygli vekur að Panama er í fyrsta sæti þriðja árið í röð. Fólk segir sérstaklega gott að starfa í og frá Panama, þar sé verðlagið mjög gott, lífsgæði betri en víða og frekar auðvelt að koma sér fyrir. Í Panama eru til dæmis bærinn Boquete sérstaklega vinsæll hjá útlendingum en eins líka Bocas del Toro. Mynd frá Panama: Þriðja árið í röð trónir Panama á toppnum. Höfuðborg Panama heitir einfaldlega Panamaborg en vinsælustu staðir útlendinga að setjast að eru þó utan höfuðborgarinnar. Staðir eins og bærinn Boquete eða paradísin Bocas del Toro.Vísir/Getty Mexíkó virðist þó skora hærra þegar kemur að mannlega þættinum. Þar sem sérstaklega er talað um hversu vinalegir heimamenn eru, er auðvelt að byggja upp tengsl og öðlast þessa eftirsóknarverðu „heimatilfinningu“. Taíland sameinar síðan þetta tvennt einstaklega vel: hið félagslega og ódýrt verðlag. Taíland fær bestu einkunnina þegar kemur að framfærslukostnaði en telst líka þriðja besta landið í því hversu auðvelt og þægilegt það er að koma sér fyrir þar. Praktísk atriði einkenna svolítið valið á Sameinuðu arabísku furstadæmunum, þar sem sérstaklega er talað um atriði eins og stafræna þjónustu, hversu auðvelt það er að lifa þar án þess að þurfa að læra nýtt tungumál og svo framvegis. Athygli vekur að það er ekki fyrr en í sjötta sæti sem Evrópuland kemst á listann: Spánn. Sem Íslendingar þekkja svo sem best af öllum löndunum því þar búa þúsundir nú þegar, sérstaklega yfir vetrartímann á Kanaríeyjum. Tekið skal fram að Ísland er ekki á listanum en það skýrist einfaldlega af því að ekki náðist tilskilinn lágmarksfjöldi svarenda. Í alþjóðlegri samkeppni virðast Norðurlöndin ekki skora hátt. Danmörk skorar þó hæst, er í 16. sæti, Svíþjóð mælist í 26. sæti en Noregur er neðst á listanum: í 31. sæti af aðeins 31 löndum sem komast á listann vegna úrtaksskilyrða. Það er þó ekki þar með sagt að það sé alltaf auðsóttara eða vinsælla að flytjast suður á bóginn í meiri sól. Því þótt sól og sumar einkenni veðurfar þeirra landa sem tróna á toppnum mælist til dæmis Ítalía í 24. sæti. Allt endurspeglar þetta því fyrst og fremst það heildarmat sem fólk gefur fyrir flutninginn til landsins; hvort heldur sem er fyrir líf í fjarvinnu eða til að njóta eftirlaunaáranna.
Fjarvinna 50+ Tengdar fréttir „Maður verður stundum að þora að taka áhættu“ „Fyrirtæki eiga ekki að hafa of miklar áhyggjur af því að fólk staldri stutt við. Því það hvort einhver starfi hjá okkur í tvö ár eða tíu ár skiptir ekki öllu máli, heldur frekar hvernig okkur tekst til á þeim tíma sem viðkomandi er í starfi hjá okkur. Til dæmis hvaða tækifæri við gáfum þeim?“ segir Þórhallur Örn Flosason Head of Global Learning Operations at PepsiCo í Bandaríkjunum. 20. maí 2022 07:00 Scobie hjónin: „Við eigum frekar að njóta meira og vera þakklát fyrir allt sem við höfum“ „Mig óraði aldrei fyrir því að ég myndi búa í Danmörku. En maður veit aldrei hvert lífið leiðir mann. Því nú er ég hér og hefur aldrei liðið betur. Það sem maður vill fyrir alla er að öllum líði vel,“ segir Richard Scobie, sem ásamt eiginkonu sinni Kristínu Einarsdóttur Scobie rekur fyrirtækið Nordic Trailblazers á eyjunni Mön í Danmörku. 13. desember 2022 07:26 Hamingjubúbblur og Ítalía: „Ég segi bara sí sí við öllu“ „Ég segi bara sí sí við öllu, flóknara þarf það ekki að vera,“ segir Rakel Garðarsdóttir athafnarkona og skellir uppúr. Rakel og eiginmaðurinn hennar, Björn Hlynur Haraldsson, fluttu til Flórens á Ítalíu í haust. Þaðan starfa þau bæði. Eða ferðast á milli eftir því hvað verkefni og vinna kalla á. 22. nóvember 2022 07:00 Fjarvinna og fyrirtækjarekstur: „Okkur langaði til að lifa lífinu öðruvísi en í hasarnum heima“ „Við vorum að horfa á þáttinn Hvar er best að búa? með Lóu Pind, um hjónin sem fluttu til Danmerkur og fóru að reka hótel í Lálandi þegar Torfi lítur allt í einu á mig og spyr: En hvað með Danmörk?“ segir Lóa Dís Finnsdóttir, grafískur hönnuður búsett í Maribo með eiginmanninum Torfa Agnarsyni auglýsingaljósmyndara. 11. október 2022 07:01 Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ „Jú jú, þetta var auðvitað allt öðruvísi þá. Ekki bara kvóti á gjaldeyri heldur kom fólk með ferðatékka sem það fékk hjá bankanum heima og skipti síðan hér í peseta,“ segir Klara Baldursdóttir og hlær. 1. september 2024 08:02 Mest lesið Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Elskar kaffi að ítölskum sið og línulega dagskrá Atvinnulíf Íslenska þjóðin getur ekki átt fiskveiðiheimildir að mati Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Nýttu símenntun til að styrkja stöðu þína Samstarf Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka: Enn margt ógert í endurreisn landsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Gullslegið klósett Bakkavararbræðra flottast Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Segðu Já í vinnunni og það strax! Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Sjá meira
„Maður verður stundum að þora að taka áhættu“ „Fyrirtæki eiga ekki að hafa of miklar áhyggjur af því að fólk staldri stutt við. Því það hvort einhver starfi hjá okkur í tvö ár eða tíu ár skiptir ekki öllu máli, heldur frekar hvernig okkur tekst til á þeim tíma sem viðkomandi er í starfi hjá okkur. Til dæmis hvaða tækifæri við gáfum þeim?“ segir Þórhallur Örn Flosason Head of Global Learning Operations at PepsiCo í Bandaríkjunum. 20. maí 2022 07:00
Scobie hjónin: „Við eigum frekar að njóta meira og vera þakklát fyrir allt sem við höfum“ „Mig óraði aldrei fyrir því að ég myndi búa í Danmörku. En maður veit aldrei hvert lífið leiðir mann. Því nú er ég hér og hefur aldrei liðið betur. Það sem maður vill fyrir alla er að öllum líði vel,“ segir Richard Scobie, sem ásamt eiginkonu sinni Kristínu Einarsdóttur Scobie rekur fyrirtækið Nordic Trailblazers á eyjunni Mön í Danmörku. 13. desember 2022 07:26
Hamingjubúbblur og Ítalía: „Ég segi bara sí sí við öllu“ „Ég segi bara sí sí við öllu, flóknara þarf það ekki að vera,“ segir Rakel Garðarsdóttir athafnarkona og skellir uppúr. Rakel og eiginmaðurinn hennar, Björn Hlynur Haraldsson, fluttu til Flórens á Ítalíu í haust. Þaðan starfa þau bæði. Eða ferðast á milli eftir því hvað verkefni og vinna kalla á. 22. nóvember 2022 07:00
Fjarvinna og fyrirtækjarekstur: „Okkur langaði til að lifa lífinu öðruvísi en í hasarnum heima“ „Við vorum að horfa á þáttinn Hvar er best að búa? með Lóu Pind, um hjónin sem fluttu til Danmerkur og fóru að reka hótel í Lálandi þegar Torfi lítur allt í einu á mig og spyr: En hvað með Danmörk?“ segir Lóa Dís Finnsdóttir, grafískur hönnuður búsett í Maribo með eiginmanninum Torfa Agnarsyni auglýsingaljósmyndara. 11. október 2022 07:01
Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ „Jú jú, þetta var auðvitað allt öðruvísi þá. Ekki bara kvóti á gjaldeyri heldur kom fólk með ferðatékka sem það fékk hjá bankanum heima og skipti síðan hér í peseta,“ segir Klara Baldursdóttir og hlær. 1. september 2024 08:02
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka: Enn margt ógert í endurreisn landsins Viðskipti innlent
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka: Enn margt ógert í endurreisn landsins Viðskipti innlent