Jón Axel búinn að tala við fimm NBA-lið og á eftir að tala við Golden State Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. maí 2020 10:30 Jón Axel Guðmundsson í leik með Davidson háskólaliðinu. Getty/ Lance King
Jón Axel Guðmundsson er skráður í nýliðaval NBA-deildarinnar í sumar og nokkur lið hafa sýnt íslenska bakverðinum áhuga. Fimm lið hafa þegar rætt við Jón Axel og hann á eftir að ræða við önnur þrjú lið í NBA-deildinni. „Ég hef talað við fimm NBA-lið og á næstu dögum er verið að koma á fundum með fleiri NBA-liðum. Ég er búinn að tala við Charlotte Hornets, Cleveland Cavaliers, Utah Jazz, Phoenix Suns og Milwaukee Bucks," sagði Jón Axel Guðmundsson í samtali við Kristján Jónsson á Morgunblaðinu. Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, hefur að undanförnu fundað með fimm NBA-liðum sem hafa sýnt honum áhuga og mun ræða við fulltrúa frá fleiri liðum á næstunni. https://t.co/cHBOUGA61u pic.twitter.com/TMP2CefNVG— mbl.is SPORT (@mblsport) May 28, 2020 „Ég á eftir að tala við Miami Heat, Sacramento Kings, Golden State Warriors og væntanlega fleiri lið. Ég reikna með því að funda með þessum liðum í næstu viku og í næsta mánuði,“ sagði Jón Axel enn fremur í viðtalinu. Með Golden State Warriors spilar einmitt Steph Curry sem var í Davidson háskólanum alveg eins og Jón Axel. Jón Axel hitti Curry meðal annars þegar hann kom að fylgjast með sínu gamla félagi spila. NBA-deildin hefur verið í frosti siðan í mars en menn ætla sér að klára tímabilið í sumar og þá líklegast bara með úrslitakeppni. Nýliðavalið á að fara fram í júlí en það gæti breyst. „Ef tímabilið verður klárað í NBA þá er nýliðavalið kannski ekki fyrr en í september,“ sagði Jón Axel í viðtalinu en sem má sjá í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira