Braut ítrekað gegn nálgunarbanni grunaður um nauðgun og heimilisofbeldi Kjartan Kjartansson skrifar 12. maí 2020 18:46 Landsréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands yfir manninum. Vísir/Egill
Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir karlmanni sem er sakaður um að hafa beitt eiginkonu sína endurteknu og margvíslegu ofbeldi var staðfestur í Landsrétti í gær. Dómurinn taldi nauðsynlegt að maðurinn sætti varðhaldi til að verja konuna og þá sem standa henni næst fyrir árásum hans. Maðurinn, sem er erlendur ríkisborgari, er grunaður um nauðgun og heimilisofbeldi en ennfremur um ítrekuð brot gegn nálgunarbanni og húsbrot. Í úrskurði Héraðsdóms Suðurlands sem úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald í síðustu viku kemur fram að konan leitaði fyrst til lögreglu vegna ofbeldis mannsins í október árið 2019. Þá var hún í uppnámi og með sýnilega áverka. Lýsti hún ofbeldi sem hefði átt sér stað allt frá því september það ár. Maðurinn neitaði sök en viðurkenndi að hafa slegið konuna í eitt skipti. Hún fór fram á að honum yrði vísað af heimili þeirra og úrskurðaður í nálgunarbann gagnvart henni og veitti lögreglustjóri það í október. Skömmu síðar dró konan kröfuna til baka og var nálgunarbannið þá fellt úr gildi. Aðeins mánuði síðar leitaði konan aftur til lögreglu og tilkynnti um alvarlegt ofbeldis mannsins gegn henni á heimili þeirra, jafnt andlegu, líkamlegu og kynferðislegu. Ofbeldið hafi staðið yfir frá hádegi til kvölds eftir að hún kom heim úr vinnu í hádeginu. Lýsti konan því að maðurinn hefði þá veist að henni með miklu ofbeldi, hótað henni lífláti, afklætt hana með ofbeldi og tekið símann hennar af henni. Því næst hafi hann brotið gróflega gegn henni kynferðislega og síðan meinað henni útgöngu. Þá skipaði maðurinn konunni að þrífa gólf á eldhúsi og baðherbergi nakinni. Á meðan á þessu stóð hótaði hann henni ítrekað lífláti og limlestingum. Maðurinn sló konuna einnig þannig að hún hlaut glóðarauga af. Læknisskoðun leiddi í ljós að konan var með áverka víða um líkamann sem studdu frásögn hennar um ofbeldið. Framburður mannsins þótti aftur á móti afar ótrúverðugur frá upphafi. Hann reyndi meðal annars að halda því fram að myndir af áverkunum sem voru teknir á lögreglustöð hafi verið af annarri konu eða falsaðar. Eins hélt hann því ýmist fram að konan hefði hlotið áverkana við líkamsrækt, að hún væri haldin sjúkdómi sé léti hana fá marbletti af minnsta tilefni og að hún vildi vera beitt ofbeldi. Herjar á þá sem standa henni næst Manninum var í kjölfarið gert að sæta brottvísun af heimilinu og nálgunarbanni gagnvart konunni öðru sinni. Eftir að hann losnaði úr gæsluvarðhaldi í desember óskaði konan eftir því að sú ákvörðun yrði felld úr gildi. Að þessu sinni synjaði lögreglustjóri beiðni konunnar. Síðan það gerðist er konan sögð hafa hrökklast undan manninum aftur og að hún fari nú huldu höfði í öðru sveitarfélagi af ótta við hann. Maðurinn hefur ítrekað brotið gegn nálgunarbanninu. Hann réðst inn á heimili þeirra í bræðiskasti og krafðist þess að konan kæmi með sér þegar konan ætlaði að fara með skilnaðarmál fyrir dómstóla í mars. Daginn eftir kom hann aftur í bræði, lamdi húsnæði að utan og krafðist þess að konan talaði við hann. Húsráðendur og lögregla hafi rekið hann burt í fjórgang áður en hann yfirgaf loks sveitarfélagið. Þar að auki hefur maðurinn herjað stöðugt á fjölskyldu, vini, vinnuveitanda og aðra sem tengjast konunni til þess að reyna að ná til hennar og komast að því hvar hún dvelji eftir að hún lokað á rafræn samskipti við hann. Maðurinn er jafnvel sagður hafa villt á sér heimildir til að komast í samskipti við konuna. Hefur hlotið refsidóma erlendis Landsréttur staðfesti gæsluvarðaldsúrskurðinn og þarf maðurinn að sæta varðhaldi til 1. júní. Í úrskurðinum var vísað til þess að maðurinn væri undir rökstuddum grun um brot sem varðað geti allt að sextán ára fangelsi. Maðurinn hafi ekki látið af háttsemi sinni gegn konunni þrátt fyrir nálgunarbann og hann hafi haft í frammi tilburði gagnvart fjölskyldumeðlimum hennar sem veki hjá þeim ótta. Vissi maðurinn af verustað konunnar stæði henni einnig ógn af honum. „…ætla má að kærði muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið auk þess að augljóst er að mati dómsins að gæsluvarðhald megi teljast nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sakbornings, einkum þá brotaþola sjálfa, en jafnframt þá sem næst henni standa. Ekki verður talið að vægari úrræði geti komið að haldi í þessu efni,“ sagði í úrskurði Héraðsdóms Suðurlands sem Landréttur staðfesti. Í úrskurðinum kemur fram að maðurinn hefur áður hlotið refsidóma erlendis og sé enn á skilorði vegna þeirra. Árið 2017 hafi hann fengið fjögurra mánaða fangelsisrefsingu fyrir hótanir og ári síðar sjö mánaða dóm fyrir líkamsmeiðingar, tilraun til líkamsmeiðinga og eignaspjöll.
Dómsmál Heimilisofbeldi Mest lesið „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Innlent „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Innlent Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Erlent „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Innlent „Í guðanna bænum höldum vöku okkar við aksturinn" Innlent Varðstjóri leystur undan vinnuskyldu vegna gruns um njósnir Innlent Allt í rugli á Rauðahafi Erlent Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Innlent Von á allhvössum vindi og rigningu Veður Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Hræðilegt að missa samskipti við umheiminn og veiðigjöldin Varðstjóri leystur undan vinnuskyldu vegna gruns um njósnir Vesturbæingar búa sig undir fjögurra vikna sundlaugarlokun Mikill reykur vegna elds í bílatætara Vill taka upp stöðvarskyldu tveimur árum eftir að hún var afnumin Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Létt í lund þrátt fyrir margra klukkustunda bið eftir Lissabon „Í guðanna bænum höldum vöku okkar við aksturinn" „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Ráðherra skoðar frekari girðingar á strandveiðar Rafmagnið komið í lag og verðbólgan eykst á ný „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Fá ekki áheyrn vegna stympinga kennara og nemanda Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Foreldrar eigi að byrja á því að setja sjálfum sér skjátíma „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Reyndu að brjótast inn í hraðbanka Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir „Við erum mjög háð rafmagninu“ Gyltur gjóta þrettán til sextán grísum í hverju goti Öryggi ógnað og refsingar fyrnist Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu Fólk eigi ekki að breyta sínu daglega lífi vegna frásagna af hópnauðgun Sambandsleysi í suðri og óviðunandi ástand í fangelsum Vilja láta rannsaka aðild flóttateymis í máli Oscars Fangelsi oft eina úrræðið Allt á áætlun en Spánarfarar beðnir um að fylgjast með Björn tekur við af Helga Sjá meira