Kveiktu í líki konunnar eftir hópnauðgun Eiður Þór Árnason skrifar 1. desember 2019 11:00 Lögreglumenn á vettvangi þar sem brennt lík konunnar fannst í Hyderabad. Vísir/AP
Fjórir menn játuðu í gær á sig að hafa hópnauðgað og myrt 27 ára gamla konu í suðurhluta Indlands. Brennt lík hennar fannst í Hyderabad, höfuðborg indverska fylkisins Andhra Pradesh, og eru mennirnir taldir hafa kveikt í konunni eftir að þeir brutu á henni. Konan var dýralæknir og er atvikið talið hafa átt sér stað síðasta miðvikudag þegar hún hvarf skyndilega. Vegfarandi fann síðar illa brunnið lík hennar undir brú í útjaðri borgarinnar. Lögreglan greindi frá því síðasta föstudag að fjórir menn hafi verið handteknir grunaðir um verknaðinn. „Þeir fluttu hana með flutningabíl þangað sem þeir komu henni fyrir undir brú, helltu dísilolíu og bensíni á líkama hennar og brenndu hana,“ er haft eftir Venkatesh, lögregluforingja á Shamshabad lögreglustöðinni í Hyderabad, í umfjöllun CNN. Að sögn lögreglu er talið að mennirnir hafa boðist til þess að hjálpa konunni að gera við sprungið mótorhjóladekk áður en þeir fluttu hana á afskekktan stað þar sem þeir frömdu verknaðinn. Í síðasta símtali konunnar sagði hún systur sinni frá vandamálinu með hjólið og greindi frá því að hún væri hrædd vitandi að fólk sæti í flutningabíl og starði á hana.
Indland Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira