Velja nýtt forsætisráðherraefni á sunnudaginn Atli Ísleifsson skrifar 5. desember 2019 11:06 Antti Rinne (til hægri) gekk á fund Sauli Niinistö Finnlandsforseta á þriðjudag þar sem hann baðst lausnar. AP
Jafnaðarmenn í Finnlandi munu velja nýtt forsætisráðherraefni flokksins á sunnudaginn. Frá þessu var greint í morgun, en Antti Rinne baðst lausnar sem forsætisráðherra fyrr í vikunni eftir að Miðflokkurinn, sem á sæti í ríkisstjórn landsins, sagðist ekki treysta Rinne lengur til að leiða stjórn. Miðstjórn Jafnaðarmannaflokksins lagði í morgun til að Rinne leiði stjórnarmyndunarviðræðurnar fyrir hönd flokksins, en Rinne mun áfram starfa sem formaður Jafnaðarmannaflokksins þó að hann hafi sagt af sér sem forsætisráðherra. Þingflokkurinn á þó lokaorðið varðandi það hver leiðir viðræðurnar fyrir hönd flokksins. Miðflokksmenn hafa áður gefið grænt ljós á að Rinne geti leitt viðræðurnar. Varaformaður Jafnaðarmanna og samgönguráðherrann Sanna Marin og þingflokksformaðurinn Antti Lindtman hafa bæði lýst því yfir að þau sækist eftir því að verða næsti forsætisráðherra landsins. Þau hafa bæði sagt að þau geti þó ekki leitt stjórnarmyndunarviðræður þar sem þau sækist nú eftir að leiða nýja stjórn. Miðflokksmenn lýstu yfir vantrausti á Rinne í kjölfar átaka á vinnumarkaði sem snerust að finnskum póststarfsmönnum. Þingkosningar fóru fram í Finnlandi í vor og myndaði Jafnaðarmannaflokkurinn þá stjórn með Græningjum, Miðflokknum, Vinstra bandalaginu og Sænska þjóðarflokknum.
Finnland Tengdar fréttir Forsætisráðherra Finnlands segir af sér Antti Rinne gekk á fund Sauli Niinistö, forseta Finnlands í dag þar sem hann baðst lausnar. 3. desember 2019 10:48 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira
Forsætisráðherra Finnlands segir af sér Antti Rinne gekk á fund Sauli Niinistö, forseta Finnlands í dag þar sem hann baðst lausnar. 3. desember 2019 10:48