Velti stolnum bíl á ofsahraða við eftirför lögreglu Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. október 2019 10:52 Svona komu lögreglumenn að bílnum við gatnamótin hjá Melahverfi í gær. Mynd/Lögregla
Lögreglan á Vesturlandi veitti ökumanni á stolnum bíl eftirför í gær frá Akrafjalli að Melahverfi. Ökumaðurinn missti þar stjórn á bifreiðinni, ók út af og velti bifreiðinni. Hann reyndist ekki slasaður og var vistaður í fangaklefa. Lögregla á Vesturlandi greinir frá þessu í tilkynningu og birtir með mynd af vettvangi, þar sem bíllinn sést á hliðinni eftir að hafa hafnað utan vegar. Skömmu áður en eftirförin hófst hafði lögreglu verið tilkynnt um að bifreið hefði verið solið við Gamla kaupfélagið á Akranesi. Lögreglumenn frá Akranesi mættu bifreiðinni á Akrafjallsvegi þar sem henni var ekið á 139 kílómetra hraða í átt að hringtorginu við Hvalfjarðargöng. Ökumanninum var gefið merki um að stöðva aksturinn en hann varð ekki við því og var bifreiðinni veitt eftirför. „Þrátt fyrir að lögreglan væri með forgangsljós tendruð þá jók ökumaðurinn ferðina og ók áfram út úr hringtorginu norður Vesturlandsveg á ofsahraða. Mikil umferð var á Vesturlandsvegi og skapaðist mikil hætta vegna þessa,“ segir í tilkynningu lögreglu. Lögreglumenn komu síðan að bifreiðinni við gatnamótin að Melahverfi þar sem hún lenti utan vegar. Ökumaður var handtekinn á staðnum grunaður um nytjastuld á bifreiðinni og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Vesturlands en reyndist ekki slasaður og var vistaður í fangaklefa að skoðun lokinni.
Akranes Lögreglumál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Sjá meira