Bale hetja Wales | Austurríkismenn skoruðu sex Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 6. september 2019 21:00 Gareth Bale reyndist hetja Wales í kvöld vísir/getty
Gareth Bale tryggði Wales sigur á Aserbaísjan í undankeppni EM 2020 í fótbolta. Króatar og Austurríkismenn völtuðu yfir andstæðinga sína. Gestirnir frá Aserbaísjan lentu undir í Wales þegar Pavlo Pashaev skoraði sjálfsmark á 26. mínútu og fóru Walesverjar með forystu inn í hálfleikinn. Aserar jöfnuðu metin eftir um klukkutíma leik en fyrirliðinn Bale skoraði sigurmarkið fyrir Wales með skalla eftir mikinn darraðadans í teignum. Mikilvægur 2-1 sigur fyrir lærisveina Ryan Giggs í baráttunni um sæti á EM. Í sama riðli vann Króatía sannfærandi útisigur á Slóvakíu. Nikola Vlasic skoraði fyrir Króatíu á lokamínútu fyrri hálfleiks og kom þeim yfir. Ivan Perisic, Bruno Petkovic og Dejan Lovren gerðu sitt markið hver í seinni hálfleik og Króatía vann 4-0 sigur. Austurríkismenn mættu Lettum á heimavelli í G-riðli. Marko Arnautovic kom heimamönnum yfir strax á sjöundu mínútu og sex mínútum síðar var staðan orðin 2-0. Í seinni hálfleik skoraði Arnautovic annað mark, í þetta skipti úr vítaspyrnu, markmaður Letta lenti í því óláni að skora sjálfsmar og þeir Konrad Laimer og Michael Gregoritsch gerðu sitt markið hvor. Lokatölur í Austurríki urðu 6-0 og eru Austurríkismenn í öðru sæti G-riðils með níu stig, þremur stigum á eftir Pólverjum sem töpuðu sínum fyrsta leik í kvöld, 2-0 fyrir Slóveníu.Úrslit kvöldsins: E-riðill: Slóvakía - Króatía 0-4 Wales - Aserbaísjan 2-1 G-riðill: Slóvenía - Pólland 2-0 Austurríki - Lettland 6-0 H-riðill: Eistland - Hvíta-Rússland 1-2 Þýskaland-Holland 2-4 I-riðill: Kýpur - Kasakstan 1-1 San Marínó - Belgía 0-4 Skotland -Rússland 1-2
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Sjá meira