Hipolito hættur hjá ÍBV Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. júní 2019 23:46 Pedro Hipolito er hættur sem þjálfari ÍBV. vísir/bára
Pedro Hipolito starfar ekki lengur sem þjálfari ÍBV í Pepsi Max-deild karla en ÍBV tilkynnti í kvöld að samkomulag hefði náðst um að aðilar myndu ljúka samstarfi. Hipolito tók við ÍBV fyrir núverandi tímabil en það situr nú í neðsta sæti deildarinnar að loknum tíu leikjum eftir þrjá tapleiki í röð, síðast gegn Stjörnunni á Hásteinsvelli í dag. Þar að auki féll ÍBV úr leik í fjórðungsúrslitum Mjólkurbikarsins í vikunni, 3-2 gegn Víkingi þrátt fyrir að hafa náð 2-0 forystu í leiknum. ÍBV hefur aðeins unnið einn leik í Pepsi Max-deild karla á tímabilinu; 3-2 sigur á þáverandi toppliði ÍA þann 2. júní. Hipolito kom hingað til lands fyrst árið 2017 og tók þá við Fram. Þar starfaði hann í tvö tímabil. ÍBV fékk fyrr í mánuðinum Gary Martin til liðs við félagið eftir skamma dvöl hjá Val. Hann fær hins vegar ekki leikheimild með Eyjamönnum fyrr en eftir helgi. Næsti leikur Eyjamanna verður gegn KR í Vestmannaeyjum á laugardag klukkan 16.00. Hér má lesa tilkynninguna frá ÍBV: „Knattspyrnuráð ÍBV og Pedro Hipolito hafa komist að samkomulagi um að ljúka samstarfi. ÍBV þakkar Pedro fyrir það það mikla og óeigingjarna starf sem hann lagði á sig og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni. Fyrst um sinn mun Ian Jeffs taka yfir þjálfun meistaraflokks ÍBV.“
Pepsi Max-deild karla Vistaskipti Mest lesið Breytti aðeins til og bætti heimsmetið í fimmtánda sinn Sport Ótrúleg sigurganga Klæbo endaði með árekstri og spítalaferð Sport Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Sport „Einn stærsti sigur hjá félaginu í körfubolta“ Sport Uppgjörið:Njarðvík - Valur 110-78| Njarðvíkingar að kveikja á sér á hárréttum tíma Körfubolti Glæsimark og ískaldur Albert tryggðu sigur Fótbolti Dagskráin í dag: Formúlan á fullu og toppslagur í Bónus Sport „Þórsarinn er svo geggjaður“ Handbolti Annar tónn í Trump sem ráðleggur Íran að halda sig fjarri HM Fótbolti Aron Einar stóð í stríði í svekkjandi tapi Fótbolti Fleiri fréttir „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Sjá meira