Réðst á dóttur sína og greip hana kverkataki Jakob Bjarnar skrifar 7. júní 2019 16:38 Maðurinn réðst á dóttur sína þar sem hún var við störf í verslun í Reykjavík. visir/vilhelm
Ónefndur faðir réðst á dóttur sína þar sem hún var við störf í verslun í Reykjavík og greip hana kverkataki. Hann ýtti henni utan í vegg með þeim afleiðingum að konan hlaut eymsli í vöðvum beggja vegna við háls og verk í hálsi, þótti sárt að kyngja með vægum dreifðum roða í koki. Þá hótaði maðurinn dóttur sinni því að hann ætlaði hann drepa hana. Var það til þess fallið að vekja með konunni ótta um líf sitt og velferð. Árásin átti sér stað 10. maí 2016. Þolandinn kærði föður sinn sem var dæmdur í héraði fyrir líkamsárás, hótun og heimilisofbeldi. Málinu var áfrýjað af hálfu föðurins en hann hafði ekki erindi sem erfiði. Landsréttur staðfesti dóm héraðs en þar var maðurinn dæmdur í tveggja mánaða fangelsisvist skilorðsbundna og til að greiða dóttur sinni 300 þúsund krónur auk dráttarvaxta og málsvarnarlaun. Við þann dóm bættist að manninum er gert að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins, samtals rúmlega 530 þúsund krónur. Aðdragandi árásarinnar er tilgreindur í dómnum en hann er sá að konan hafði hringt í föður sinn og farið fram á að hann hætti að hafa afskipti af sér og sínu lífi. Þetta kallaði fram ofsareiði með manninum sem fór og hitti dóttur sína þar sem hún var við störf í verslun í borginni með áðurnefndum afleiðingum.
Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Sjá meira