Þjálfari Þórs/KA um meistara Blika: Vorum betri en þær í fyrra og erum betri en þær í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. maí 2019 11:30 Blikar fagna á móti Þór/KA í fyrra. Vísir/Bára
Þór/KA tekur á móti Breiðabliki í kvöld í uppgjöri Íslandsmeistaraliða síðustu tveggja sumra en þessi stórleikur 4. umferðar Pepsi Max deildar kvenna verður í beinni á Stöð 2 Sport. Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Þórs/KA, var kokhraustur í viðtali við ÞórTV fyrir leikinn sem hefst klukkan 18.30 í kvöld „Við vorum betri heldur en Breiðablik í fyrra og erum betri en Breiðablik í ár. Við ætlum að sýna þeim hver ræður og vinna þennan leik,“ sagði Halldór Jón í viðtalinu. Breiðablik fékk fimm stigum meira en Þór/KA í fyrra og vann seinni leik liðanna 3-0 á Kópavogsvelli í þriðju síðustu umferðinni. Eftir þann sigur voru úrslitin nánast ráðin. „Þetta er sama Breiðabliksliðið og hefur verið undanfarin ár. Við þekkjum hvern einasta leikmann í þeirra liði og þetta snýst bara um að okkar stelpur nái upp sínum leik, fari eftir fyrirmælum og reyni að kreista það allra mesta úr sjálfum sér,“ sagði Halldór Jón. Breiðabliksliðið er með fullt hús á toppi Pepsi Max deildar kvenna með 9 stig og markatöluna 9-1 eftir sigra á ÍBV, Selfossi og Keflavík. „Ég er ekkert að grínast með það að við erum með betra lið en þetta Blikalið. Þær eru búnar að spila við töluvert slakari lið heldur en við í upphafi móts. Þær eru því eðlilega með níu stig enda skyldusigrar allir. Nú er bara komið að okkur og við ætlum að halda áfram á þeirri góðu siglingu sem við erum á, mæta af fullri alvöru og klára þennan leik,“ sagði Halldór Jón við Þór/KA en allt viðtalið má sjá hér fyrir neðan.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Handbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Enski boltinn „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti Dagskráin í dag: Blikar mæta Shakhtar Sport Fleiri fréttir Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Sjá meira