Duterte styrkir stöðu sína Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. maí 2019 07:22 Duterte forseti Filippseyja hefur háð blóðugt stríð gegn fíkniefnum. Filippseyjar eiga sæti í mannréttindaráðinu. EPA/Rolex Dela Pena
Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, vann sigur í kosningum sem fram fóru í síðustu viku. Úrslit hafa verið kunngjörð og hafa samherjar hans á þingi landsins náð að styrkja stöðu sína verulega, ekki síst í öldungadeildinni, sem hingað til hefur stöðvað margar af hans umdeildari hugmyndum. Sigurinn gefur honum nú mun meiri völd til að framkvæma stefnu sína en hann ætlar að breyta stjórnarskránni verulega og taka auk þess upp dauðarefsingar í landinu að nýju. Þá hefur hann einnig í hyggju að lækka sakhæfisaldur í 12 ár, auk þess sem hann vill auka sjálfstæði héraðsstjórna. Allar þessar tillögur eru umdeildar en þó ekki gert ráð fyrir öðru en að þær verði samþykktar, þegar nýi meirihlutinn tekur formlega við völdum í júlí. Þrátt fyrir að vera harðlega gagnrýndur fyrir hið blóðuga stríð gegn eiturlyfjum, þar sem þúsundir hafa verið teknar af lífi án dóms og laga, er Duterte afar vinsæll í landinu. Á meðal þeirra sem náðu kjöri í öldungadeildina er fyrrverandi lögreglustjórinn Ronald dela Rosa, sem sagður er hafa staðið á bakvið eiturlyfjastríðið undanfarin misseri.
Filippseyjar Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Sjá meira