Fer ekki til Manchester United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2019 12:30 Raphael Varane. Vísir/Getty
Raphael Varane, miðvörður heimsmeistara Frakka, verður áfram hjá Real Madrid á næstu leiktíð þrátt fyrir að mikið hafi verið skrifað um annað í erlendum fjölmiðlum. Þessi 25 ára gamli varnarmaður mun því ekki fara til Manchester United en Ole Gunnar Solskjær er að leita að nýjum miðverði fyrir komandi tímabil. Real Madrid átti skelfilegt tímabil, endaði í þriðja sæti í spænsku deildinni 19 stigum á eftir meisturum Barcelona. Liðið átti ekki möguleika á því að vinna neinn titil á lokakaflanum og tímabilið var í raun búið þegar liðið datt út úr Meistaradeildinni í mars. „Ég vil vera áfram í Madrid og ég er viss um að við verðum sterkir á næsta tímabili,“ sagði Raphael Varane við spænska íþróttablaðið Marca.Marca’s Cover | “Varane: Next year I will continue in Madrid.” pic.twitter.com/JMcHfUjUHd — Real Madrid Info (@RMadridInfo) May 21, 2019„Við viljum snúa við blaðinu og koma til baka í haust með eitthvað nýtt,“ sagði Varane. „Ég er enn þá ungur og tel mig ver kominn á það stig að geta nú sameinað ungan aldur og reynslu. Ég vonast til að næsta tímabil verða það besta sem þið hafið séð frá Varane hingað til,“ sagði Raphael Varane. Paul Pogba, liðsfélagi Varane í franska landsliðinu, hefur verið sterklega orðaður við lið Real Madrid. „Ég get ekki sagt að við tölum saman um þann möguleika en hann er frábær leikmaður sem gæti spilað fyrir Real Madrid. Það er mikil samkeppni hér. Við sjáum til hvar hann verður í ágúst,“ sagði Varane.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið UFC-bardagakappi lést í svefni Sport Williams-systurnar gera aðra tilraun að endurkomu Sport Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Fótbolti Mun Mount verða lausnin fyrir Manchester United? Fótbolti „Vorum miklu betri allan tímann“ Fótbolti Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Golf Venni vann í Noregi en venst því ekki að vera Noregsmeistari Sport Situr á botni deildarinnar eftir að hafa verið tekinn af velli Fótbolti Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? Fótbolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Sjá meira