Kristófer: Fórum ekki inn í skel og urðum litlir Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. apríl 2019 21:08 Kristófer í leiknum í kvöld vísir/vilhelm
KR er komið í úrslitaeinvígi Domino's deildar karla í körfubolta eftir sigur á Þór frá Þorlákshöfn í fjórða leik liðanna í undanúrslitum. „Við héldum haus allan tímann. Við vissum að þó við værum fljótir að komast yfir þá hætta þeir aldrei og þeir koma alltaf með áhlaup,“ sagði Kristófer Acox eftir leikinn sem KR vann 93-108. „Við fórum ekki inn í skel og urðum litlir heldur héldum við áfram. Við erum með gríðarlega sterkt sóknarlið og þeir eru að skora 90 stig í öllum leikjum, við reyndum eins og við gátum að hægja á þeim en það er mjög erfitt að eiga við þá.“ „Björn steig upp fáránlega vel og kom okkur í gegnum þriðja og fjórða leikhluta, ég er fáránlega stoltur af honum hvernig hann kom og svaraði kallinu.“ „Við getum verið gríðarlega ánægðir með að klára þessa gríðarlega erfiðu seríu.“ KR var yfir allan tímann í leiknum og náði alltaf að kæfa öll áhlaup Þórsara í fæðingu. Þór komst næst KR-ingum í þriðja leikhluta þegar munurinn varð minnst fimm stig. „Við erum með þennan kjarna og reynslan kikkar inn. Við vitum að þeir gefast aldrei upp og við þurfum að halda okkar striki, við getum ekki hægt á okkur þó þetta sé komið upp í tuttugu stig. Við erum mjög stoltir hvernig við svöruðum, héldum haus og kláruðum þetta.“ Að sönnum íþróttamannasið vildi Kristófer ekkert tjá sig um það hvort hann vildi mæta ÍR eða Stjörnunni í úrslitunum en fjórði leikur undanúrslitaviðureignar þeirra stendur yfir þegar þetta er skrifað.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ Sport Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Fótbolti Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Fótbolti „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Handbolti Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Körfubolti Tíu leikmönnum bannað að koma til Bandaríkjanna Fótbolti Cantona á Ströndum: Leikur í kvikmynd á Hólmavík Fótbolti Besta sætið: Af hverju er ekki búið að semja við Snorra? Sport Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Galatasaray - Liverpool | Tekist á í Tyrklandi Fótbolti Fleiri fréttir Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks „Þeir geta klárað þetta án mín“ Tekur tólf leikmenn með til Serbíu „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic Sjá meira