Djúpsteikt taco að hætti Evu Laufeyjar Stefán Árni Pálsson skrifar 16. apríl 2019 14:30
Sjónvarpskokkurinn Eva Laufey birtir reglulega uppskriftir að girnilegum réttum á bloggsíðu sinni og er nú komið að taco þriðjudegi. Gefum Evu orðið: Þriðjudagar eru taco dagar á okkar heimili. Þetta er orðin virkilega skemmtileg hefð og ég er spennt alla vikuna að elda ljúffengt taco á þriðjudögum. Í síðustu viku eldaði ég eða djúpsteikti öllu heldur fisk og bar fram í tortilla vefjum, guðdómlega gott. Ég hef í raun ekki hætt að hugsa um þennan rétt og hann verður á matseðlinum fljótlega aftur. Ég mæli mjög mikið með að þið prófið. Uppskriftin miðast við fjóra – fimm Hráefni í þeirri röð sem ég nota þau:Mangósalsa: 1 mangó 1 rauð paprika Handfylli kóríander 10 – 12 kirsuberjatómatar Salt og pipar Safi úr hálfri límónu 1 msk ólífuolía Aðferð: Skerið grænmetið mjög smátt og blandið saman í skál. Kreistið límónusafa og hellið ólífuolíu yfir, kryddið til með salti og pipar. Geymið í kæli í 20 – 30 mínútur.Lárperumauk 3 lárperur 1 – 2 hvítlauksrif Handfylli kóríander Safi úr einni límónu Salt 1/2 laukur 1 msk ólífuolía Aðferð: Setjið öll hráefnin í blandara/matvinnsluvél. Maukið þar til lárperumaukið er orðið mjög fínt, smakkið ykkur auðvitað til á meðan!Fiskurinn/orly deigið 700 g fiskur (ég nota yfirleitt þorsk eða ýsu) Olía sem þolir djúpsteikingu 250 ml hveiti 250 ml sódavatn 1 tsk lyftiduft 1 tsk salt og pipar 1 tsk hvítlauksduft Aðferð: Hitið olíu í potti, magnið er ca. aðeins meira en helmingur af pottinum (þetta er kannski agaleg mæling – ég mæli betur næst!). Aðal málið er að hafa nóg af olíu. Á meðan olían hitnar í pottinum sem tekur smá stund er orly deigið útbúið. Blandið hveiti, lyftidufti, salti, pipar, hvítlauksdufti og sódavatni saman í skál og hrærið vel þar til blandan verður silkimjúk. Skerið fiskinn í jafn stóra bita, kryddið með salti og pipar og veltið upp úr hveiti. Síðan fer fiskurinn ofan í orly deigið og því næst ofan í pottinn þar sem hann er djúpsteiktur í ca. 4 mínútur eða þar til deigið er gullinbrúnt. Það er gott að snúa honum við einu sinni til tvisvar. Þerrið fiskinn með eldhúspappír, kryddið með salti og kreistið jafnvel smá sítrónusafa yfir. Berið fram í tortillavefju með lárperumauki, mangósalsa og ferskum granateplum. P.s. Ég fékk mjög margar fyrirspurnir varðandi olíu, en veljið þá olíu sem þolir djúpsteikingu til dæmis wesson eða isio.
Eva Laufey Sjávarréttir Taco Uppskriftir Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Lífið samstarf „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Lífið Seld sú hugmynd að grannur líkami sé það eina sem er aðlaðandi Lífið Fleiri fréttir Þakkargjörðarveisla að hætti Evu Laufeyjar Retinól-salat tekur yfir TikTok Mongólsk kjötsúpa Ása: „Þetta er bara alveg eins og íslensk kjötsúpa“ Mac n' cheese frá grunni „Foodporn í boði Adams“ Stökkir ostabitar í pistasíuhjúp Djúsí kjúklingasalat á naanbrauði Létt og ljúffengt eplasalat Tiramisu-brownie að hætti Höllu Sjá meira