Tilkynnti ekki um andlát föður og millifærði milljónir af bankareikningi hans Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. apríl 2019 13:11 Héraðsdómur Norðurlands vestra.
Tæplega sextug kona hefur verið ákærð fyrir fjárdrátt með því að hafa millifært 2,2 milljónir króna af reikningi nýlátins föður síns sem búsettur var á norðvesturlandi. Segir í ákæru að hún hafi látið hjá líða að tilkynna andlátið formlega til sýslumanns. Fjórir bræður konunnar gera kröfu að hún verði dæmd í opinberu máli til að greiða þeim og dánarbúinu 2450 þúsund krónur í bætur með dráttarvöxtum. Konan mun vera búsett í Bretlandi og er ákæran birt í Lögbirtingablaðinu í dag. Meint brot áttu sér stað á níu daga tímabili í lok október árið 2015. Faðir hennar lést þann 22. október 2015 en daginn eftir millifærði konan 1700 þúsund krónur í þremur greiðslum af reikningi föður síns yfir á eigin reikning. Viku síðar millifærði hún svo tvívegis 250 þúsund krónur. Hagnýtti hún sér umrædda fjármuni í eigin þágu án heimildar segir í ákærunni. Konan er yngst fimm systkina en bræður hennar gera sem fyrr segir kröfu um bætur vegna málsins sem rekið verður fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra.
Dómsmál Mest lesið Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Innlent Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Innlent Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Erlent Maður féll í Vestari-Jökulsá Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Innlent Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Innlent Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Erlent Fleiri fréttir Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Sjá meira