Falllið með flesta þrista í Domino´s deild karla í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. mars 2019 15:00 Það hefur ekki dugað Blikum að raða niður þristum á þessu tímabili því þeir eru á leiðnni niður í 1. deild. Bjarni Geir Gunnarsson hefur skorað 19 þrista í vetur. Vísir/Daníel
Blikarnir eru fallnir úr Domino´s deild karla í körfubolta en það breytir því ekki að þeir eru „besta“ þriggja stiga skotlið deildarinnar. Ekkert lið í deildinni hefur nefnilega skorað fleiri þrista en Blikar í deildinni í vetur. Blikar skoruðu tíu þrista á Sauðárkróki í gær og hafa skorað tíu þrista eða fleiri í fimmtán af tuttugu deildarleikjum sínum í vetur. Breiðablik hefur alls skorað 236 þriggja stiga körfur í 20 leikjum eða 11,8 að meðaltali í leik. Tindastólsliðið skoraði sex fleiri þrista í gær og er nú þremur þristum á eftir Kópavogsliðinu. Hitt falliðið, Skallagrímur, rekur aftur á móti lestina með aðeins 153 þrista eða 83 þristum færra en Breiðablik. Blikar eru því að skora fjóra fleiri þrista í leik en Borgnesningar. Blikar eru reyndar bara í áttunda sæti yfir bestu þriggja stiga nýtinguna en þeir hafa sett niður 32,1 prósent þriggja stiga skota sinna á tímabilinu. Ekkert lið hefur reynt fleiri þriggja stiga skot en einmitt Blikar.Flestar þriggja stiga körfur í Domino´s deild karla 2018-19: 1. Breiðablik 236 2. Tindastóll 233 3. Stjarnan 217 (19 leikir) 4. Njarðvík 211 5. Grindavík 204 6. Keflavík 200 7. Valur 197 8. Þór Þ. 194 9. KR 190 (19 leikir) 10. ÍR 169 11. Haukar 161 12. Skallagrímur 153Leikmenn Breiðabliks með fleiri en tíu þrista í vetur: 1. Christian Covile Breiðablik 35 2. Árni Elmar Hrafnsson Breiðablik 34 3. Erlendur Ágúst Stefánsson Breiðablik 33 4. Snorri Vignisson Breiðablik 29 5. Hilmar Pétursson Breiðablik 27 6. Kofi Omar Josephs Breiðablik 20 7. Bjarni Geir Gunnarsson Breiðablik 19 8. Arnór Hermannsson Breiðablik 12
Dominos-deild karla Mest lesið Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Handbolti Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Handbolti Segja Hákon Arnar undir smásjá stórliðs Fótbolti Aldrei séð föður sinn jafn glaðan og sáttan í einu og sama verkefninu Íslenski boltinn Farnar á EM í Sviss en koma fyrst við í Serbíu Fótbolti Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin úr Bestu þar sem Gylfi Þór fór mikinn og glæsimark var skorað Íslenski boltinn Leik á Ítalíu aflýst vegna óeirða Fótbolti OKC Thunder NBA-meistari Sport Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Álftnesingar krækja í lykilmann Keflavíkur ÍR-ingar næla sér í leikmann úr Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar Hætta í miðju úrslitaeinvígi og enginn meistari krýndur Dóttirin talar íslensku: Í úrslitum NBA og meira tengd Íslandi en áður Þrumuleikur frá Jalen Williams og Thunder einum sigri frá titlinum Semja við íslenska kjarnann í liði Íslandsmeistaranna Ótrúleg endurkoma og allt jafnt í úrslitaeinvíginu Hin stórstjarna Celtics þurfti einnig að fara undir hnífinn Áhorfið minnkaði um 55 prósent eftir að Caitlin Clark meiddist Sjá meira