Ungabarn fannst á lífi eftir 35 tíma í rústum húss Atli Ísleifsson skrifar 1. janúar 2019 15:30 Björgunarliði hefur tekist að bjarga alls sex manns á lífi úr rústum hússins, þar á meðal þrettán ára dreng. Getty
Sjö manns eru látnir og margra er enn saknað eftir að gassprenging varð í tíu hæða fjölbýlishúsi í rússneska bænum Magnitogorsk í gærmorgun. Fréttir hafa nú borist af því að björgunarliði hafi tekist að bjarga ellefu mánaða dreng úr rústum hússins, 35 tímum eftir að það hrundi. Talsmaður yfirvalda segir að drengurinn sé alvarlega slasaður og hefur hann nú verið fluttur á sjúkrahús í höfuðborginni. Móðir drengsins lifði einnig af sprenginguna. Staðfest hefur verið að sjö hafi látist, en 37 er enn saknað. Áður en hinn ellefu mánaða drengur fannst á lífi, hafði talsmaður yfirvalda lýst því yfir að ólíklegt væri að nokkur myndi finnast á lífi. Er það rakið til mikils kuldaveðurs, en í nótt var 18 stiga frost í Magnitogorsk sem er að finna í Úralfjöllum, um 1.700 kílómetrum austur af höfuðborginni Moskvu. Þá hefur haldið áfram að hrynja úr húsinu sem hefur gert björgunarstarfi erfitt fyrir. Björgunarliði hafði áður tekist að bjarga alls sex manns á lífi úr rústum hússins, þar á meðal þrettán ára dreng. Ríkisstjórinn Boris Dubrovskij hefur lýst yfir sorgardegi í héraðinu á morgun og fyrirskipað að flaggað skuli í hálfa stöng. Vladimír Pútín Rússlandsforseti ferðaðist í gær til Magnitogorsk til að fylgjast með björgunarstarfi.
Rússland Mest lesið Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Fleiri fréttir Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Sjá meira