Átök manns við könguló leiddu til útkalls lögreglu Samúel Karl Ólason skrifar 2. janúar 2019 16:15 Í samtali við BBC sagði Samuel Dinnison, talsmaður lögreglunnar, að lögregluþjónarnir sem fóru á vettvang hefðu ekki verið búist við að málið færi svona þegar tilkynningin barst. EPA/RICHARD WAINWRIGHT
Maður sem var á gangi í Perth í Ástralíu í dögunum heyrði grátur barns úr íbúð sem hann gekk fram hjá og mann ítrekað öskra: „Af hverju drepstu ekki?“. Maðurinn hafði áhyggjur af því að verið væri að fremja eitthvað ódæði þar inni og hringdi því á lögregluna. Þegar lögregluþjóna bar að garði kom þó í ljós að lætin voru vegna átaka manns við könguló. Maðurinn bað lögregluþjónanna afsökunar og sagðist vera lafandi hræddur við köngulær. Hann hefði verið að reyna að drepa eina slíka sem hefði komist inn í íbúð hans. Lögreglan í Wanneroo birti mynd af skráningu lögregluþjóna vegna atviksins á Twitter í nótt þar sem fram kom að engan hefði sakað í átökunum, fyrir utan köngulóna. Myndinni var þó eytt skömmu seinna. Í frétt Guardian segir það hafa verið gert þar sem ekki hefði átt að birtast mynd úr skrám lögreglunnar og þar að auki hefði skráin innihaldið stafsetningarvillur. Í samtali við BBC sagði Samuel Dinnison, talsmaður lögreglunnar, að lögregluþjónarnir sem fóru á vettvang hefðu ekki verið búist við að málið færi svona þegar tilkynningin barst. Það hafi verið gott að maðurinn hafi eingöngu verið að reyna að drepa könguló.Ekki liggur fyrir hvers kyns könguló um var að ræða. Um 2.900 tegundir má finna í Ástralíu en lang flestar þeirra eru meinlausar. Enginn mun hafa dáið þar vegna köngulóarbits frá 1981.
Ástralía Dýr Eyjaálfa Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fleiri fréttir „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Sjá meira