Tugir dóma um heimilisofbeldi á árinu Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 31. desember 2018 08:20 Sigrún Jónasdóttir, reynslubolti í lögreglunni, var á bakvakt þegar ljósmyndari smellti af henni mynd á lögreglustöðinni við Hlemm í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Í 22 dómum sem féllu hjá héraðsdómstólum landsins í heimilisofbeldismálum á árinu, voru tveir sýknaðir. Breytt verklag lögreglu, nýtt ákvæði í hegningarlögum og aukin umræða í samfélaginu um heimilisofbeldi; allt hefur þetta haft þau áhrif að bæði ákærum og sakfellingum fyrir brot í nánu sambandi hefur fjölgað mjög á undanförnum árum. „Ég hugsa að fólk sé orðið meðvitaðra í dag um að líta ekki undan. Þegar verklaginu var breytt var það kynnt mjög vel og ég hugsa að það hafi líka hjálpað til; aukin umræða um heimilisofbeldi,“ segir Sigrún Jónasdóttir rannsóknarlögreglumaður. Hún segir nágranna duglegri að hringja í neyðarlínu og þá eru þeir yfirleitt að tilkynna hávaða eða öskur úr næstu íbúð. Upplifunin er að fólki sé hreinlega annt um nágranna sína. Þolendur sjálfir hringja líka á lögreglu og í einstaka tilvikum eru það börn sem hringja; segja foreldra sína vera að rífast. „Einnig hafa tilkynningar í einhverjum tilvikum komið þannig, þá aðallega frá erlendu fólki sem talar litla íslensku, að það sendir skilaboð til vinar og biður hann að hafa samband við lögreglu fyrir sína hönd,“ segir Sigrún. Það sem breyttist þegar nýtt verklag lögreglu var tekið upp árið 2014 er fyrst og fremst að öll mál eru rannsökuð, en áður var alls ekki alltaf haft samband við rannsóknarlögreglu. Reynt var að stilla til friðar og oft náðu afskipti lögreglu ekki lengra. Samkvæmt hinu nýja verklagi kemur útkallsdeild almennu lögreglunnar fyrst á vettvang, ástandið er metið og hvort einhver brot hafi átt sér stað; ofbeldi, hótanir, eignaspjöll. Ef svo er er kallaður til rannsóknarlögreglumaður og tekin skýrsla af geranda óháð því hvort brotaþoli vill kæra. „Sem brotaþoli í svona máli geturðu skorast undan vitnaskyldu vegna tengsla og margir nýta sér það,“ segir Sigrún en tekur fram að öll ofbeldismál fari þó í rannsókn og að lokum til ákærusviðs þar sem ákvörðun er tekin um ákæru. Ef börn búa á heimilinu er félagsþjónustan alltaf kölluð til og barnavernd. „Fulltrúi barnaverndar sér um að ræða við börnin og fá þeirra upplifun á ástandinu á heimilinu og fulltrúi félagsþjónustunnar kynnir þolanda hvaða úrræði eru í boði fyrir þolendur ofbeldis, svo sem Kvennaathvarfið og Bjarkarhlíð,“ segir Sigrún og nefnir einnig að túlkur sé að auki kallaður til ef um erlendan geranda eða þolanda sé að ræða. Í hinu nýja verklagi felst einnig eftirfylgni sem félagsþjónustan sér um og í sumum tilvikum fer rannsóknarlögreglumaður ásamt fulltrúa félagsþjónustunnar í heimsókn til brotaþola til að kanna ástandið á heimilinu. „Það hjálpar mikið að félagsþjónustan komi strax inn í málið. Fólk fær aðstoð, ráðgjöf og nær betur að vinna úr sínum málum. Í einhverjum tilvikum veit fólk ekki hvert það á að leita eða hvaða aðstoð er í boði og þar kemur félagsþjónustan sterk inn,“ segir Sigrún og bætir því við að þegar börn eru í spilinu fái þau viðtal hjá barnavernd. Sigrún hefur 20 ára reynslu í lögreglunni og meðal breytinga sem hún merkir eftir hið breytta verklag er að það er mun fátíðara en áður að lögregla þurfi að hafa ítrekuð afskipti af sama heimili og segir hún að aðkoma félagsþjónustunnar og eftirfylgnin eigi eflaust stóran þátt í því. Svo hefjast ekki öll málin með símtali til neyðarlínu. „Það hefur líka aukist að brotaþoli leiti beint til lögreglu, panti tíma í kærumóttöku, komi á lögreglustöð og leggi fram kæru.“ Vísbendingar eru um fjölgun tilkynninga um heimilisófrið yfir jólin. Að jafnaði er tilkynnt um fjögur ofbeldis- og ágreiningsmál milli skyldra og tengdra á hverjum sólarhring en yfir jól fer þetta meðaltal upp í sex tilvik á sólarhring samkvæmt upplýsingum frá Rannveigu Þórisdóttur, afbrotafræðingi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Sigrún segist þó ekki upplifa þennan mun. „Það er bara allur gangur á þessu,“ segir hún og nefnir að í sínu hverfi; Kópavogi og Breiðholti, hafi ekkert heimilisofbeldismál komið upp á aðfangadag, jóladag eða annan jóladag. Þá viti hún að svo hafi einnig verið á stöðinni í Hafnarfirði sem nái einnig til Garðabæjar og Álftaness. Aðspurð segir Sigrún útköllin í raun ekkert ólík um jól. „Þetta er alltaf jafn erfiður málaflokkur. Að koma inn á heimili þar sem sambýlisfólk hefur verið að rífast og hefur jafnvel verið beitt ofbeldi. Allir í uppnámi og lögregla, félagsþjónusta, barnavernd og jafnvel túlkur komin inn á gólf til þín og vilja fara að ræða málin og fá framburð um hvað var að gerast milli ykkar.“ Sigrún segir svona mál koma upp í öllum þjóðfélagshópum. „Heimilisofbeldi spyr hvorki um stétt né stöðu og gerist á heimilum bæði ríkra og fátækra, hjá fólki á öllum aldri, bæði af íslenskum og erlendum uppruna.“Nokkurra mánaða fangelsi algengasta refsingin Nýtt ákvæði hegningarlaga þar sem heimilisofbeldi er sérstaklega skilgreint tók gildi 5. apríl árið 2016. Ekki eru til tölur um fjölda ákæra það ár en árið á eftir voru gefnar út átján ákærur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna brota gegn ákvæðinu og 21 það sem af er þessu ári vegna 28 brota. Af 22 dómum í þessum málaflokki féllu tveir sýknudómar í héraði á árinu. Refsingar fyrir heimilisofbeldi voru yfirleitt fangelsi í nokkra mánuði, allt frá tveimur og upp í tólf, en þyngri fyrir alvarlegustu brotin. Sá þyngsti féll fyrir hrottafengna nauðgun og brot í nánu sambandi en brotaþoli skipti um réttargæslumann í málinu, dró framburð sinn til baka, lagðist gegn skýrslutökum af heilbrigðisstarfsfólki og fór fram á að málið yrði fellt niður. Á það var ekki hlustað og gerandinn dæmdur í fjögurra ára fangelsi.
Birtist í Fréttablaðinu Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Fleiri fréttir Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Sjá meira