Dæmdur fyrir nauðgun á gólfinu á Hressó Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. desember 2018 16:45 Brotið átti sér stað í febrúar árið 2016. Vísir/Vilhelm
Hemn Rasul Hamd, ríkisborgari með óþekktan dvalarstað, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga konu á salerni á veitingastaðnum Hressó í Austurstrætí í febrúar fyrir tæpum þremur árum. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hamd játaði við aðalmeðferð málsins að hafa haft samfarir við brotaþola á salerni Hressó en hafði áður neitað því við yfirheyrslu hjá lögreglu. Sagði hann samfarirnar hafa verið með vilja konunnar. Hann var á veitingastaðnum ásamt félögum sínum að fagna afmæli sínu. Frásögn konunnar og Hamd var gjörólík. Hann sagði þau hafa verið í kossaflensi og farið saman á klósett þegar það losnaði. Konan mundi, þrátt fyrir minniháttar drykkju, lítið eftir kvöldinu. Tóku vinkonur hennar undir að hún hefði virkað í skrýtnu ástandi miðað við magn áfengis sem hún hafði neytt.Mundi eftir sér á gólfinu Hún lýsti því þannig að hún hefði farið á salernið þangað sem maðurinn hefði verið kominn inn. Hann hefði reynt að kyssa hana, hún neitað og farið á klósettið. Síðan mundi hún eftir sér á gólfinu, með buxurnar á hælunum og vinkona hennar að reka manninn af henni. Hamd var gefið að sök að hafa haft samræði við konuna gegn vilja hennar með því að beita hana ofbeldi og notfæra sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum vegna ástands hennar. Í niðurstöðu héraðsdóms segir að konan hafi frá upphafi borið að hún hafi „dottið út“ og muna mest lítið eftir sér, eins og rakið var. Hún hefði að eigin sögn drukkið þrjá bjóra og reykt gras kvöldið áður. Vinkonur hennar sögðu allar að ástand hennar hefði ekki verið í samræmi við áfengisneyslu hennar þetta kvöld. Ein vinkvennanna lýsti því að konan hefði verið eins og meðvitundarlaus á salernisgólfinu þegar hún kom að og önnur lýsti því hvernig ákærði hefði haldið henni. Konan sagði vinkonu sinni frá því daginn eftir að þetta hefði verið eitthvað sem hún hefði ekki viljað og að henni hefði verið nauðgað. Þá lýsti hún atvikum á sama hátt á Neyðarmóttökunni. Var það mat dómsins að konan hefði gefið trúverðuga skýrslu fyrir dómi. Skýrslan hefði verið í meginatriðum í samræmi við frásögn í skýrslutöku hjá lögreglu. Á sama hátt skýrði hún öðrum frá atvikum málsins, bæði vinkonum sínum og eins á Neyðarmóttökunni.Ótrúverðugur framburður ákærða Framburður Hamd væri á hinn bóginn ekki trúverðugur. Fyrst sagðist hann ekki muna hvort hann hefði haft samræði við konuna eða ekki. Fyrir dómi kannaðist hann hins vegar við samfarirnar og kvað þær hafa verið með samþykki brotaþola. „Þá er til þess að líta að ákærði hefur samfarir við brotaþola þar sem hún liggur á steingólfi á salerni veitingastaðarins. Þetta gerist skömmu eftir að þau höfðu sést í fyrsta skipti og bar brotaþoli áverka eftir samfarirnar eins og rakið var,“ segir í dómnum. Var staðfastur framburður konunnar lagður til grundvallar og Hamd því sakfelldur fyrir nauðgun. Var refsingin ákveðin hæfileg tvö og hálft ár og konunni dæmdar 1,5 milljón króna í miskabætur.
Dómsmál Tengdar fréttir Interpol gefur út handtökuskipun á hendur manni vegna máls á Íslandi Interpol hefur gefið út handtökuskipun á hendur manni vegna nauðgunar en hann fór úr landi áður en hægt var að birta honum ákæru vegna málsins. 2. september 2018 17:01 Í farbanni grunaður um nauðgun en komst samt úr landi Rúmlega þrítugur Íraki, sem er eftirlýstur af Interpol vegna nauðgunar á Íslandi, slapp úr landi þrátt fyrir að hann hafi verið í farbanni. Mjög erfitt er að koma í veg fyrir að menn með einbeittan brotavilji komist framhjá farbanni með því að villa á sér heimildir að sögn saksóknara. 3. september 2018 13:47 Grunaður um nauðgun á salerninu á Hressó Erlendur karlmaður er sakaður um að hafa nauðgað konu á veitingastaðnum Hressó í Austurstræti aðfaranótt Valentínusardagsins þann 14. febrúar 2016. 6. nóvember 2018 09:15 Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Sjá meira
Interpol gefur út handtökuskipun á hendur manni vegna máls á Íslandi Interpol hefur gefið út handtökuskipun á hendur manni vegna nauðgunar en hann fór úr landi áður en hægt var að birta honum ákæru vegna málsins. 2. september 2018 17:01
Í farbanni grunaður um nauðgun en komst samt úr landi Rúmlega þrítugur Íraki, sem er eftirlýstur af Interpol vegna nauðgunar á Íslandi, slapp úr landi þrátt fyrir að hann hafi verið í farbanni. Mjög erfitt er að koma í veg fyrir að menn með einbeittan brotavilji komist framhjá farbanni með því að villa á sér heimildir að sögn saksóknara. 3. september 2018 13:47
Grunaður um nauðgun á salerninu á Hressó Erlendur karlmaður er sakaður um að hafa nauðgað konu á veitingastaðnum Hressó í Austurstræti aðfaranótt Valentínusardagsins þann 14. febrúar 2016. 6. nóvember 2018 09:15