Bára mætt í héraðsdóm Birgir Olgeirsson skrifar 17. desember 2018 14:51 Bára Halldórsdóttir og bakland hennar í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan þrjú. Vísir/Vilhelm
Bára Halldórsdóttir er mætt til þingfestingar í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli fjögurra þingmanna Miðflokksins vegna Klaustursupptakanna. Bára, sem tók upp samtal þingmannanna á Klausturbar í nóvember, er þangað mætt að beiðni lögmanns þingmannanna fjögurra vegna hugsanlegrar málsóknar gegn henni. Fjöldi fólks hafði boðað komu sína í Héraðsdóm Reykjavíkur til að sýna Báru samstöðu. Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, lögmaður Báru, sagði í hádegisfréttum Bylgunnar í dag að hún muni ekki gefa skýrslu fyrir dómi í dag. Sagði Auður að Bára væri aðili máls og aðilaskýrslur fari ekki fram í svona máli.Uppfært klukkan 15:07: Klappað var fyrir Báru áður en hún fór inn í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur. Setið er í hverju sæti í dómsalnum. Bára þakkaði kærlega fyrir stuðninginn áður enn hún gekk inn. Hún tók sér síðan sæti hjá lögmönnum sínum, Ragnari Aðalsteinssyni og Auði Tinnu. Uppfært klukkan 15:10: Enginn þingmanna Miðflokksins sem eiga í hlut, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Bergþór Ólafsson og Anna Kolbrún Ólafsdóttir, er mættur í dómsal. Lögmaður þeirra, Reimar Pétursson, er hins vegar mættur. Uppfært klukkan 15:14:Nokkrir nafntogaðir einstaklingar í þjóðfélaginu eru mættir. Þar á meðal Freyja Haraldsdóttir, Jón Gnarr og Mörður Árnason. Uppfært klukkan 15:16:Dómarinn er mættur í þingsal og byrjaði á því að biðja Báru afsökunar á að hafa rangfeðrað hana í boðun í dómsal. Uppfært klukkan 15:41: Þar sem Bára hafnaði kröfu um skýrslutöku boðaði dómari í málinu munnlegan málflutning þar sem sóknaraðili og verjandi gerðu grein fyrir máli sínu. Reimar Pétursson, lögmaður fjögurra þingmanna Miðflokksins, segir að brotið hafi verið á rétti þingmannanna til einkalífs. Þetta hafi gerst þegar Bára Halldórsdóttir tók upp einkasamtal sem þau hafi átt á Klaustur bar þann 20. nóvember. Hljóðritunin hafi verið þeim óafvitandi og samtal þeirra gert opinbert. Í því hafi falist brot gegn 229. grein almennra hegningarlaga. Auk þess varði brotin skaða- og miskabótaskyldu. Reimar sagði það markmið þingmannanna fjögurra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, Gunnars Braga Sveinssonar, Bergþórs Ólasonar og Önnu Kolbrúnar Ólafsdóttur, að tryggja sönnun á því hvernig á brotinu gegn þeim hafi verið staðið. Þingmennirnir voru fjarverandi þegar málflutningur fór fram í dag. Það vilji þannig til að til sé myndefni á eftirlitsmyndavélum sem ætti að geta varpað glöggu ljósi á þetta og sé mikilvægt að lagt verði fyrir dóm. „Þetta er auðvitað þannig að myndefni er ekki varðveitt að eilífu heldur mismunandi,“ sagði Reimar. Viðmiðunarregla Persónuverndar væri níutíu dagar og sama hjá Alþingi að því er hann taldi. „Mér hefur skilist að myndavélar á Klaustri séu stilltar þannig í skemmri tíma en ráðstafanir þar til að varðveita í sex mánuði en sá tími er ekki nægjanlegur ef til dómsmáls tekur og mikilvægt að tryggja tilvist þessa myndefnis.“ Á myndefninu ætti að vera hægt að sjá nákvæmlega hvernig Bára hafi framkvæmt brotið og ætti að sjást hvernig hún hafi haldið upptökunum leyndum fyrir þingmönnunum. Það sýni hversu sterkur ásetningur hennar hafi verið til brotsins og eins hvort einhver hafi framkvæmt brotið með henni. „Þannig að beiðnin snýst fyrst og fremst um það að fá vitneskju um þessi atriði á þessum stigum málsins,“ sagði Reimar. Bára hafnaði því við upphaf þinghalds í dag að gefa skýrslu. Sagði Reimar það einkennilegt af henni enda sé hún boðberi gagnsæis á kostnað einkalífs. Það veki auknar grunsemdir að frásögn hennar af atvikum sé ekki fullkomlega heiðarleg. Þá bætti Reimar við að þingmönnunum fjórum þætti eitthvað vanta inn í frásögn Báru, þ.e. miðað við það sem komið hefði fram í fjölmiðlum. Sú frásögn telji þeir ekki trúverðuga og standist ekki skynsemisskoðun. Því sé óásættanlegt að hafa ekki myndefnið af Klaustur bar til skoðunar. Auður Tinna, verjandi Báru, sagði að nú væri málið nú þegar til meðferðar hjá Persónuvernd. Að öllum líkindum verði höfðað mál vegna upptakanna þar sem málið verður væntanlega leitt til lyktar. Þá sagði Auður að hægt væri að afla frekari upplýsinga á annan hátt en að leiða Báru til vitnis. Forsendur vitnamálsins væru brostnar eftir að Bára steig fram í viðtali og sagði Auður að Bára hefði ekkert að fela þó að hún hafnaði að gefa skýrslu.Uppfært klukkan 15:49: Nú hafa varnaraðilar og sóknaraðili lokið máli sínu. Dómari sagði að málið yrði tekið til úrskurðar og hann verði vonandi kveðinn upp í vikulok, það gæti þó dregist.Bára Halldórsdóttir í Héraðsdómi Reykjavíkur með nýjan farsíma sem hún fékk að gjöf frá ónefndum velgjörðarmanni. Vísr/VilhelmFjöldi fólks er mættur í Héraðsdóm Reykjavíkur til að sýna Báru stuðning í verki.Vísir
Persónuvernd Upptökur á Klaustur bar Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira