Fíkniefnið sykur Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 6. desember 2018 06:30 „Jafnt í dýrum sem mönnum sýna sönnunargögnin fram á mikilvæga samsvörun og skörun vímuefna- og sykurneyslu. Bæði í áhrifunum á heilastarfsemina og á hegðun,“ kom fram í grein British Journal of Sports Medicine. Vísir/getty
Sykur er að finna í einhverri mynd í öllum mat sem inniheldur kolvetni. Til að mynda ávöxtum, grænmeti, korni og mjólkurvörum. Og þótt rannsóknir hafi sýnt fram á að óhófleg neysla ávaxta, grænmetis og korns auki líkurnar á hjartasjúkdómum, sykursýki og ákveðnum afbrigðum krabbameins stafar helsta hættan af neyslu viðbætts sykurs, að því er kemur fram hjá bresku heilbrigðisstofnuninni, læknadeild Harvard-háskóla og víðar.Sykurneysla barna mikil Landskönnun á mataræði Íslendinga sem gerð var 2010 og 2011 leiddi í ljós að Íslendingar á aldrinum átján til áttatíu ára fái að meðaltali tæp níu prósent orku úr viðbættum sykri. Það er undir tíu prósenta viðmiði Embættis landlæknis en þó er tekið fram á vef Landlæknis að talið sé að enn frekari takmörkun gæti verið til bóta. Yngri Íslendingar neyta svo meiri sykurs. Sex ára börn fá ellefu prósent orku úr viðbættum sykri, níu ára börn þrettán prósent og fimmtán ára börn sextán prósent. Embættið birtir á vef sínum hagnýtar upplýsingar um sykurneyslu. Þar kemur fram að viðbættur sykur þurfi ekki endilega að birtast okkur í mynd hvíts sykurs. Hrásykur, púðursykur, melassi, síróp, agavesíróp, viðbættur ávaxtasykur og hunang geti talist til viðbætts sykurs. „Það skiptir ekki máli hvaða tegund af sykri er um að ræða, almennt er ekki hollara að bæta í matvælin einni sykurtegund fremur en annarri,“ segir á vef Landlæknis. Þar er fólki ráðlagt að drekka vatn eða kolsýrt vatn án sítrónusýru í stað gos- eða svaladrykkja, að gæta hófs í neyslu á sælgæti, kökum, kexi og ís og fá sér fremur hnetur, fræ eða ávexti.Sykur og hjartað „Áhrif óhóflegrar neyslu sykurs á líkurnar á offitu og sykursýki eru vel þekkt. En það gæti komið mörgum á óvart hversu mikið sykurneyslan hefur áhrif á hjartað,“ sagði Frank Hu, prófessor í næringarfræði við Harvard, í grein sem birtist á vef læknadeildar skólans. Hu og kollegar hans fengu rannsókn sína á áhrifum neyslu viðbætts sykurs á hjartað birta í JAMA Internal Medicine árið 2014. Þar sýndu rannsakendurnir fram á tengsl mikillar neyslu á sykri og aukinna líka á því að deyja úr hjartasjúkdómum. Rannsóknin var gerð á fimmtán ára tímabili. Líkur þátttakenda, sem fengu sautján til 21 prósent hitaeininga úr sykri, á því að deyja úr hjartasjúkdómi voru 38 prósentum hærri en þeirra sem fengu átta prósent hitaeininga úr sykri.Hrásykur, púðursykur, melassi, síróp, agavesíróp, viðbættur ávaxtasykur og hunang geti talist til viðbætts sykurs.Vísir/getty„Til að gera langa sögu stutta þá aukast líkurnar á hjartasjúkdómum eftir því sem sykurneysla eykst,“ sagði Hu og bætti við að sykurneysla virtist svo hafa enn frekari óbein áhrif sem hefðu þó ekki verið fyllilega rannsökuð. Til að mynda gæti sykurneysla leitt til lifrarsjúkdóma. Hu varaði þó við því að fara of geyst í að skera niður neyslu viðbætts sykurs. „Þú gætir lent í því að vera sífellt að teygja þig í einföld kolvetni til þess að svara þörfinni, til að mynda hvítt brauð. Það hækkar blóðsykurinn. Svo gætirðu farið að leita meira í saltan mat sem veldur hjartanu einnig vandræðum.Slæm áhrif á lifur San Francisco-deild Háskólans í Kaliforníu rekur vef sem nefnist Sugar Science þar sem finna má mikið af upplýsingum um áhrif sykurneyslu. Þar er til dæmis fjallað um að of mikill frúktósi, eða ávaxtasykur, sem er ein helsta sykran sem nýtt er sem viðbættur sykur og má þar að auki finna í ávöxtum, geti haft sams konar áhrif á lifrina og óhófleg áfengisneysla. 31 prósent fullorðinna Bandaríkjamanna hefur til að mynda þróað með sér fitulifur af þessum sökum (e. nonalchoholic fatty liver disease). Einnig kemur fram að rannsóknir hafi sýnt fram á að fyrir marga leiði sykurneysla til breytinga í randkerfi heilans, sem stýrir hvötum og tilfinningum. Þannig kalli sykurneysla á bæði fráhvarfseinkenni og þörfina fyrir meiri sykur. Sykurneysla hækkar blóðþrýstinginn sem leiðir til þess að brisið framleiðir insúlín. Of mikið insúlín leiðir svo til þess að líkaminn geymir aukið magn hitaeininga í formi fitu. Þetta myndar eins konar vítahring.Fíkniefnið sykur Rannsókn þriggja fræðimanna sem birtist í ritrýnda tímaritinu Neuroscience & Biobehavioral Reviews árið 2008 sýndi fram á að rottur gætu í ákveðnum tilfellum orðið háðar sykri. „Þetta gæti mátt heimfæra yfir á mannfólk, eins og gefið hefur verið til kynna í rannsóknum á átröskunum og offitu,“ sagði í útdrætti skýrslu rannsakendanna.Sykurneysla hækkar blóðþrýstinginn sem leiðir til þess að brisið framleiðir insúlín. Of mikið insúlín leiðir svo til þess að líkaminn geymir aukið magn hitaeininga í formi fitu. Þetta myndar eins konar vítahring.Vísir/gettyÞar segir að sykurneysla valdi því að dópamín og ópíóðar myndist í heilanum. Þar af leiðandi megi draga þá ályktun að sykur sé í raun ávanabindandi. Fleiri rannsóknir hafa verið gerðar sem styðja þessa staðhæfingu. Þrír rannsakendur fengu birta grein á síðasta ári í British Journal of Sports Medicine þar sem farið var yfir þann fjölda rannsókna sem hafa verið gerðar á því hvort sykur sé ávanabindandi. Fram kom að ýmsar rannsóknir á dýrum hefðu leitt í ljós að sykurneysla valdi fleiri einkennum fíknar en er nóg til þess að sykur teljist ávanabindandi efni. Slíkar rannsóknir hafi aukinheldur sýnt fram á álíka hegðun og við neyslu vímuefna. Til að mynda fráhvarfseinkenni og sterka þörf fyrir næsta skammt. „Jafnt í dýrum sem mönnum sýna sönnunargögnin fram á mikilvæga samsvörun og skörun vímuefna- og sykurneyslu. Bæði í áhrifunum á heilastarfsemina og á hegðun,“ sagði í útdrætti greinarinnar.
Birtist í Fréttablaðinu Heilbrigðismál Heilsa Mest lesið Veðurvaktin: Snjókoman rétt að byrja og víða erfið færð Veður Ungur Miðflokksmaður gengst við rasisma og segir af sér Innlent Snjókoman rétt að byrja Innlent Flugmaðurinn sem fórst millilenti oft í Reykjavík Innlent Bílar út af veginum á Reykjanesbraut Innlent Eldur í blokk við Ljósheima Innlent Ráðgjafinn ráðinn í tímabundið starf eftir dýra skreppitúra Innlent Skvísur geti virkað sem hálfgerðir þroskaþjófar Innlent Fjölmargir farþegar fastir í flugvélum á Keflavíkurflugvelli Innlent Játar að hafa myrt Shinzo Abe Erlent Fleiri fréttir Sakar Evrópu um stríðsæsingu Musk í samkeppni við Wikipedia Búast við hamförum vegna Melissu Van de Velde bannað að ferðast til Ástralíu til að keppa á heimsmeistaramótinu Segja Rússa elta almenna borgara með drónum Játar að hafa myrt Shinzo Abe Undirrituðu samkomulag um fágæta málma Hljóp út í örvæntingu „með lífið í poka“ Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Réttað yfir konu sem sagðist vera Madeleine McCann Áfjáður í að bjóða sig fram aftur í trássi við stjórnarskrá Hafa fundið Cessna-vélina Elsti forseti heims endurkjörinn í skugga mótmæla Jamaíka býr sig undir öflugasta fellibyl sem þangað hefur ratað Friður forsenda þess að erlent lið verði sent til Gasa Milei vann stórsigur í Argentínu Matarbankar segjast ekki munu anna eftirspurninni Aftökur á meintum smyglurum „ekki morð“ heldur „vörn við eitri“ Leit að flugvélinni horfnu engan árangur borið Ráðist að fjölmiðlafólki með ofbeldi og fúkyrðum Hundruðum gert að rýma vegna grjóthruns í Ósló Newsom íhugar forsetaframboð Allt undir hjá forsetanum hárprúða Óttast blóðbað við fall síðasta vígis stjórnarhersins í Darfur Bankaerfingi greiðir laun hermanna meðan ríkisstofnanir eru lokaðar Gómuðu aftur manninn sem þeir slepptu fyrir mistök Tveir handteknir vegna Louvre ránsins Leita Cessnu sem hvarf nærri Nuuk Segja „fljúgandi Chernobyl“ hafa flogið í fimmtán klukkustundir Hækkar tolla á kanadískar vörur vegna sjónvarpsauglýsingar Sjá meira