Hlynur: Nenni ekki að hlusta á einhvern klappa mér á bakið fyrir að vera duglegur Anton Ingi Leifsson skrifar 23. nóvember 2018 22:46 Hlynur var ósáttur í kvöld. vísir/bára
Hlynur Bæringsson, leikmaður Stjörnunnar, var hundsvekktur eftir tap Stjörnunar gegn Njarðvík í tvíframlengdum leik í Ljónagryfjunni í kvöld. „Ég er bara svekktur. Þetta er glatað. Ég er orðinn þreyttur á þessu,“ sagði Hlynur vel pirraður í leikslok. Stjarnan var að frákasta vel og Hlynur segir að það gefi sér lítið að fá klapp á bakið fyrir það. „Ég nenni ekki að hlusta á einhvern klappa mér á bakið fyrir að vera duglegur. Það er búið að gera það lengi. Við eigum bara að klára þessa leiki.“ „Við erum að gera bara mistök, ég og fleiri. Við erum að gera varnar- og sóknarlega heimskuleg mistök. Við erum í tvígang fjórum stigum yfir og eigum að klára þessa leiki bara.“ Stjarnan er búið að tapa fjórum af fyrstu átta leikjunum en fyrir mótið var búist við afar miklu af liðinu. „Ég bjóst ekki við því að vera í þessari stöðu heldur. Þetta eru vonbrigði. Við verðum bara að vera betri, bæði sem einstaklingar og lið.“ „Njarðvík er með mjög gott lið og koma hingað og tapa í tvíframlengdum leik er ekki málið. Ég er ekki óánægður með liðið í heild sinni í dag.“ „Það voru margir sem stóðu sig vel í dag en við verðum að vera betri, burt séð frá þessum leik. Það verða allir að stíga upp sem einstaklingar og lið,“ sagði Hlynur.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ Sport Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Fótbolti Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Fótbolti Cantona á Ströndum: Leikur í kvikmynd á Hólmavík Fótbolti Tíu leikmönnum bannað að koma til Bandaríkjanna Fótbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti Truflaður af Aroni Pálmars i viðtali Sport HM-leikir í Boston í uppnámi Fótbolti West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni Enski boltinn Fleiri fréttir NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks „Þeir geta klárað þetta án mín“ Tekur tólf leikmenn með til Serbíu „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic „Þegar liðsfélagar þínir hafa trú á þér þá kemur sjálfstraustið“ Stjarnan kláraði Ármann snemma en Stólarnir stóðu í Keflavík Sjá meira