Borgin horfir til einkarekinna leikskóla til að brúa bilið Atli Ísleifsson skrifar 19. nóvember 2018 11:22 Borgin hyggst verja 5,2 milljörðum króna til uppbyggingarinnar á næstu fimm árum. vísir/vilhelm
Reykjavíkurborg hyggst fjölga leikskólaplássum um 700 til 750 á næstu fimm árum til að hægt verði að bjóða öllum börnum tólf mánaða og eldri pláss á leikskóla fyrir lok árs 2023. Borgin hyggst verja 5,2 milljörðum króna til uppbyggingarinnar á næstu fimm árum. Þetta kemur fram í tillögum stýrihópsins Brúum bilið sem borgarráð samþykkti í lok síðustu viku. Stýrihópnum var ætlað að vinna að tillögum um hvernig brúa megi bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og verða þær kynntar á blaðamannafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 15 í dag. Í tillögunum kemur fram að unnið skuli að fjölgun leikskólarýma með „umtalsverðri fjölgun í sjálfstætt reknum leikskólum“, eins og segir í bókun meirihlutans. Áætlað er að fyrirhuguð uppbygging kalli á 260 til 270 ný stöðugildi.Fimm nýr leikskólar Lagt er til að byggðir verði fimm nýir leikskólar hið minnsta – í Úlfarsárdal, við Kirkjusand, Njálsgötu, Vogabyggð og Skerjafjörð. Þá verði viðbyggingar reistar við fimm leikskóla borgarinnar hið minnsta þar sem mikil eftirspurn er eftir leikskólarýmum. Skulu þær rísa við leikskólana Seljakot, Kvistaborg, Reynisholt og Hof auk leikskóla í Grafarvogi. Nýjar leikskóladeildir verða opnaðar í færanlegu húsnæði á næsta ári við fjóra leikskóla þar sem eftirspurn eftir leikskólarýmum er mikil. „Deildirnar verða við leikskólana Jöklaborg, Hof, Seljakot og Kvistaborg til viðbótar nýrri deild við leikskólann Maríuborg sem opnaði í haust,“ segir í tillögunum. Þá verði lokið við að setja á fót sérútbúnar ungbarnadeildir við alla borgarrekna leikskóla, sem hafa fjórar deildir eða fleiri á næstu fimm árum.Mynd/reykjavíkurborgFjölgun sjálfstætt reknum leikskólum „Aðgerðaáætlunin gerir ráð fyrir að leikskólarýmum fjölgi um allt að 750 á næstu fimm árum með þessari uppbyggingu í borgarreknum leikskólum en jafnframt með umtalsverðri fjölgun í sjálfstætt reknum leikskólum. Gert er ráð fyrir að formleg inntaka barna verði framvegis tvisvar á ári. Lagt er til í fjárfestingaáætlun borgarinnar til næstu fimm ára að rúmlega 5,2 milljörðum króna verði varið í þessa leikskólauppbyggingu,“ segir í bókuninni. Með tillögunum er ætlað er „að tryggja faglega menntun allra barna, auka þjónustu við foreldra og stuðla þannig að auknu jafnræði á vinnumarkaði.“Mynd/reykjavíkurborgTil lítils að fjölga skólum ef þeir standa ómannaðir Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins lögðu fram bókun á fundi borgarráðs þar sem segir að þrátt fyrir fögur fyrirheit borgarinnar hafi biðlistar verið langir og börn send heim vegna manneklu síðasta vetur. Mikilvægt sé að grípa til ráðstafana svo komið verði í veg fyrir manneklu, mikla starfsmannaveltu og svo auka megi hlut faglærðra á leikskólum Reykjavíkurborgar. „Eins mætti víkka sjóndeildarhringinn og leggja aukna áherslu á ráðningu starfsfólks með fjölbreyttan bakgrunn sem gæti reynst þroskandi fyrir börnin, t.d. bakgrunn í tónlist, íþróttum eða listum. Það er til lítils að fjölga leikskólarýmum ef leikskólarnir standa ómannaðir,“ segir í bókun borgarfulltrúa minnihlutans.Tillögurnar verða kynntar á blaðamannafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 15 í dag.Vísir/vilhelmKallar á mannafla Í skýrslu stýrihópsins er fjallað um það að þegar settar séu fram áætlanir um uppbyggingu leikskóla og fjölgun leikskólarýma sé mikilvægt að huga að þeirri þörf sem það kallar á í mannafla. Fjölgun rýma um 700 til 750 skapi þörf fyrir 260 til 270 ný stöðugildi á næstu fimm árum eða ríflega fimmtíu störf á ári að meðaltali sem skiptast milli borgarrekinna og sjálfstætt rekinna leikskóla. Reynst hefur erfitt á síðustu árum, sem einkennst hafi af uppsveiflu, að manna leikskóla hæfu og faglærðu fólki. „Stétt leikskólakennara er að eldast og nýliðun hefur verið í sögulegu lágmarki. Haustin 2016 og 2017 voru leikskólum borgarinnar afar erfið hvað varðar ráðningar en heldur betur hefur gengið í þeim efnum haustið 2018 þar sem fækkaði um nærri helming þeim störfum sem ómönnuð voru í byrjun hausts,“ segir í skýrslunni.Bætt starfsumhverfi Er talið að aðgerðir sem gripið var til varðandi það að bæta starfsumhverfi leikskólakennara hafi skilað árangri, meðal annars með fækkun barna í rýmum, fækkun barna í elstu aldurshópum á hvern starfsmann með fjölgun starfsmanna, aukinn undirbúningstíma leikskólakennara, heilsueflingu starfsmanna og með því að veita starfsfólki svigrúm til náms í leikskólafræðum. „Upplýsingar frá háskólunum gefa einnig fyrirheit um aukningu nýliða leikskólakennara en nýnemum í grunnnámi til leikskólakennara í Háskóla Íslands hafði haustið 2018 fjölgað frá árinu 2016 úr 37 í 69 eða um 87%. Í Háskólanum á Akureyri voru nýir nemar í grunnnámi í kennarafræðum með leikskólakjörsvið samtals 15 haustið 2018 en 2016 og 2017 voru þeir 12 hvort ár. Í Listaháskóla Íslands hófst diplómanám í leikskólakennarafræðum haustið 2018 og eru tveir nemendur skráðir í það,“ segir í skýrslunni.
Borgarstjórn Fjölskyldumál Skóla - og menntamál Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira