Risahöfn í Finnafirði að færast yfir á næsta stig Kristján Már Unnarsson skrifar 5. september 2018 20:00 Rannsóknarholur voru grafnar á fyrirhuguðu hafnarsvæði við Finnafjörð sumarið 2015. Gunnólfsvíkurfjall í baksýn. Mynd/Friðrika Marteinsdóttir, Eflu.
Aðilar sem kannað hafa möguleika á alþjóðlegri stórskipahöfn við Langanes hyggjast ákveða um næstu mánaðamót hvort stofnuð verði tvö hlutafélög um verkefnið. Þýska hafnafélagið Bremenports hefur þegar varið mörghundruð milljónum króna til undirbúningsrannsókna. Fjallað var um hafnaráform í Finnafirði í fréttum Stöðvar 2. Hafnarmannvirki undir Gunnólfsvíkurfjalli fóru fyrst inn á aðalskipulag fyrir meira en áratug en svæðið er á milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Fyrir fjórum árum komst hreyfing á málið þegar sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur gengu til samstarfs við þýska félagið Bremenports og verkfræðistofuna Eflu. Viljayfirlýsing var svo undirrituð fyrir tveimur árum.Höfnin er áformuð í botni Finnafjarðar við Bakkaflóa í krikanum sunnan við Langanes. Næstu þéttbýli eru Þórshöfn og Bakkafjörður.Hugmyndin byggir á því að með bráðnun hafíss norðurslóða styttist siglingaleiðin milli Asíu og Evrópu verulega, norðausturleiðin stytti siglinguna um 5.200 sjómílur eða um fimmtán sólarhringa. Stór gámaskip sigli um íshafið, farminum verði umskipað á Íslandi, og önnur gámaskip flytji svo farminn milli Íslands og hinna ýmsu hafna Evrópu og Norður-Ameríku. Rannsóknir sem Bremenports kostaði benda til að svæðið henti vel til hafnargerðar og að kostnaður við framkvæmdir verði innan eðlilegra marka. Það að eitt stærsta hafnafyrirtæki Evrópu verji þannig háum fjárhæðum til undirbúningsrannsókna þykir sterk vísbending um að menn, sem ætla má að hafi þekkingu á alþjóðlegum siglingum, telji þetta raunhæfan kost. Þá hefur þriðja stærsta skipafélag heims, hið kínverska Cosco, sýnt höfninni áhuga, og sendi fulltrúa sína til Íslands í fyrra til viðræðna um málið.Samstarfið handsalað í Ráðherrabústaðnum vorið 2014. Til vinstri eru Þorsteinn Steinsson, þáverandi sveitarstjóri Vopnafjarðar, og Siggeir Stefánsson, þáverandi oddviti Langanesbyggðar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, og Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, vottuðu stuðning þáverandi ríkisstjórnar með nærveru sinni, og lengst til hægri er Robert Howe, framkvæmdastjóri Bremenports.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.En nú er komið að því að ákveða hvort kennitala verði sett á verkefnið, eins og Elías Pétursson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, orðar það. Samstarfsaðilarnir fjórir eiga í viðræðum um stofnun tveggja hlutafélaga, þróunarfélags og rekstrarfélags, og vonast þeir til að það skýrist í kringum næstu mánaðamót hvort verkefnið verði þannig fært yfir á næsta stig. Elías tekur fram að enn sé mörgum spurningum ósvarað. Þróunarferli taki þrjú til fjögur ár, þá eigi eftir að finna viðskiptavini, og ef skipafélög hafi áhuga, þá megi gera ráð fyrir að hafnargerðin taki þrjú til fimm ár. Ef allt gangi upp verði höfnin tilbúin eftir áratug. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Langanesbyggð Vopnafjörður Tengdar fréttir Kínverjar vilja fjárfesta í umskipunarhöfn á Íslandi Kínverjar hafa rætt við íslensk stjórnvöld um að byggja hafnarmannvirki á Íslandi vegna siglinga yfir Norðurskautið. Þetta upplýsir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra en á ráðstefnu í dag sagði hann mestu viðskiptatækifæri Íslendinga á þessari öld tengjast heimskautasvæðunum. Salurinn á Grand hótel Reykjavík var þéttsetinn á ráðstefnu sem utanríkisráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og Íslandsstofa efndu til um sóknarfæri á norðurslóðum. 22. nóvember 2012 20:13 Rannsóknir vegna risahafnar í Finnafirði sagðar lofa góðu Undirbúningsrannsóknir eru hafnar við Langanes vegna stórskipahafnar sem ætlað er að þjóna norðurslóðum. 21. september 2015 19:30 Bremenports fjármagnar rannsóknir vegna nýrrar hafnar í Finnafirði Sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur hafa gengið til samstarfs við Bremenports í Þýskalandi um rannsóknir og prófanir vegna mögulegrar uppbyggingar athafna- og hafnarsvæðis í Finnafirði. 27. júní 2013 11:41 Fyrsti áfangi í Finnafirði myndi kosta 18 milljarða Verði umskipunarhöfn byggð upp í Finnafirði nemur heildarfjárfestingin tugum milljarða. Þýska fyrirtækið Bremenport ætlar að verja um 450 milljónum í rannsóknir á næstu þremur árum. Viðlegukantar hafnarinnar yrðu 3 til 5 kílómetrar. 11. nóvember 2013 07:00 Funduðu með kínverskum skiparisa um Finnafjarðarverkefnið Alls var um þrjá fundi eða kynningar að ræða og voru það starfsmenn frá skrifstofu kínverska skipafélagsins í Finnlandi sem óskuðu eftir kynningu á Finnafjarðarverkefninu. 5. september 2017 06:00 Mest lesið Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Viðskipti innlent Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Viðskipti erlent Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Atvinnulíf Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Samstarf Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Viðskipti innlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Sjá meira
Kínverjar vilja fjárfesta í umskipunarhöfn á Íslandi Kínverjar hafa rætt við íslensk stjórnvöld um að byggja hafnarmannvirki á Íslandi vegna siglinga yfir Norðurskautið. Þetta upplýsir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra en á ráðstefnu í dag sagði hann mestu viðskiptatækifæri Íslendinga á þessari öld tengjast heimskautasvæðunum. Salurinn á Grand hótel Reykjavík var þéttsetinn á ráðstefnu sem utanríkisráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og Íslandsstofa efndu til um sóknarfæri á norðurslóðum. 22. nóvember 2012 20:13
Rannsóknir vegna risahafnar í Finnafirði sagðar lofa góðu Undirbúningsrannsóknir eru hafnar við Langanes vegna stórskipahafnar sem ætlað er að þjóna norðurslóðum. 21. september 2015 19:30
Bremenports fjármagnar rannsóknir vegna nýrrar hafnar í Finnafirði Sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur hafa gengið til samstarfs við Bremenports í Þýskalandi um rannsóknir og prófanir vegna mögulegrar uppbyggingar athafna- og hafnarsvæðis í Finnafirði. 27. júní 2013 11:41
Fyrsti áfangi í Finnafirði myndi kosta 18 milljarða Verði umskipunarhöfn byggð upp í Finnafirði nemur heildarfjárfestingin tugum milljarða. Þýska fyrirtækið Bremenport ætlar að verja um 450 milljónum í rannsóknir á næstu þremur árum. Viðlegukantar hafnarinnar yrðu 3 til 5 kílómetrar. 11. nóvember 2013 07:00
Funduðu með kínverskum skiparisa um Finnafjarðarverkefnið Alls var um þrjá fundi eða kynningar að ræða og voru það starfsmenn frá skrifstofu kínverska skipafélagsins í Finnlandi sem óskuðu eftir kynningu á Finnafjarðarverkefninu. 5. september 2017 06:00