Berglind með þrennu í bursti á grönnunum og Stjarnan kláraði Selfoss Anton Ingi Leifsson skrifar 31. júlí 2018 20:56 Berglind var frábær í kvöld. vísir/ernir
Breiðablik gerði sér lítið fyrir og skellti grönnum sínum í HK/Víking 6-1 er liðið mættust í tólftu umferð Pepsi-deildar kvenna á Kópavogsvelli í kvöld. Fyrsta markið kom á fjórðu mínútu er Berglind Björg Þorvalsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins og hún var aftur á ferðinni mínútu síðar. Á sautjándu mínútu var staðan orðin 3-0 með marki Guðrúnar Arnardóttur og þremur mínútum síðar kom Kristín Dís Árnadóttir heimastúlkum í 4-0. Þannig stóðu leikar þangað til á 53. mínútu er Berglind fullkomnaði þrennuna en fimm mínútum síðar skoraði Alexandra Jóhannsdóttir sjötta mark Breiðabliks. Þórhildur Þórhallsdóttir minnkaði muninn fyrir gestina úr HK/Víking er tólf mínútur voru eftir og þar við sat. Lokatölur 6-1. Blikarnir eru eftir leikinn á toppi deildarinnar með 33 stig, einu stigi meira en ríkjandi Íslandsmeistarar, Þór/KA. Það er ljóst að það verður hörð barátta um titilinn í kvennaflokki. HK/Víkingur siglir lygnan sjó um miðja deild en nýliðarnir eru í sjötta sætinu með þrettán stig, fjórum stigum frá fallsæti. Stjarnan er í fjórða sætinu með 22 stig eftir 3-0 sigur á Selfossi. Fyrstu tvö mörkin skoraði markamaskínan Harpa Þorsteinsdóttir; fyrst á 66. mínútu og annað markið kom tíu mínútum síðar. Telma Hjaltalín Þrastardóttir innsiglaði svo sigur Stjörnunnar úr vítaspyrnu sex mínútum fyrir leikslok en skömmu áður hafði Harpa farið af velli. Lokatölur 3-0. Selfoss er í sjöunda sætinu, þremur stigum frá fallsæti. Úrslit og markaskorarar eru fengnir frá úrslit.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Þurfti að ýta þjálfarum af sér þegar hún kom í mark Sport Umfjöllun og viðtöl: Valur - Grindavík 68-90 | Annar sigur Grindvíkinga í röð Körfubolti Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - Fylkir 2-0 │Skagamenn upp í þriðja sætið Íslenski boltinn Diaz hengdi Conor | Fimmtán bardaga sigurgöngu lokið Sport Hollendingar Evrópumeistarar í fyrsta sinn Fótbolti Umfjöllun og viðtöl: HK - Selfoss 29-34 | Meistararnir gáfu í þegar þess þurfti Handbolti Griezmann staðfestur sem leikmaður Barcelona Fótbolti Freyr: Ódýrt hjá Milos og Dofri fleygði sér niður Íslenski boltinn Hefur skorað á 16 tímabilum í röð í efstu deild Íslenski boltinn Neymar skrópaði á æfingu Fótbolti Fleiri fréttir Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Jónatan og formaður hissa á tali um KR-löngun Víkingar vilja finna nýtt nafn á Safamýrarsvæðið og biðja um hjálp „Ég væri miklu frekar til í að skipta deildinni í efri og neðri“ Fara loksins inn í íbúðina sem þau keyptu fyrir tveimur árum Árni Snær áfram milli stanganna hjá Stjörnunni Frá Klaksvík á Krókinn Samningi Caulkers við Stjörnuna rift „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Sjá meira