Rankaði við sér í líkhúsi Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. júlí 2018 11:06 Konan þótti líkleg. Vísir/getty
Suður-afrískri konu er nú veitt aðhlynning eftir að hafa fundist á lífi í frysti líkhúss. Konan hafði verið flutt í líkhúsið í norðurhluta Suður-Afríku eftir að hún var úrskurðuð látin eftir bílslys. Talsmenn sjúkraflutningafyrirtækisins segja að konan hafi ekki sýnt nokkurt lífsmark í sjúkrabílnum. Það hafi ekki verið fyrr en starfsmaður líkhússins leit inn í líkfrystinn sem komið hafði í ljós að hún andaði enn. Að sögn breska ríkisútvarpsins er málið nú til rannsóknar, en konan hefur ekki verið nafngreind. Sjúkraflutningafyrirtækið neitar allri sök í málinu og segir að ekkert bendi til vanrækslu af hálfu starfsmanna þess. Nokkrir slösuðust í umræddu bílslysi og tveir eru sagðir hafa látið lífið. Hvort fyrrnefnd kona sé í þeim fjölda er óljóst. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem fregnir berast af upprisu sem þessari. Það gerðist síðast í janúar þegar fangi á Spáni vaknaði aftur til lífsins, örfáum klukkustundum áður en átti að kryfja hann. Þá hafa Suður-Afríkumenn kynnst svipuðum málum. Karlmaður rankaði við sér í líkhúsi í landinu árið 2011. Fimm árum síðar var annar maður fluttur á lífi í líkhús eftir árekstur. Hann er sagður hafa látist fimm klukkustundum síðar.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjá meira