Þakka körfuknattleiksdeild Grindavíkur fyrir að koma heiðarlega fram Anton Ingi Leifsson skrifar 6. júlí 2018 09:45 Sigtryggur Arnar í leik með Stólunum á síðustu leiktíð. vísir/eyþór
Stjórn körfuknattsleiksdeildar Tindastóls birti yfirlýsingu á fréttamiðlinum Feykir í morgun þar sem farið er yfir brotthvarf Sigtryggs Arnars Björnssonar frá félaginu. Mikið fjaðrafok var í kringum félagaskipti Sigtryggs en Stólarnir töldu hann vera með samning við félagið. Sigtryggur Arnar var ekki á sama máli og samdi við Grindavík. Vísir greindi fyrst frá málinu og rætt var meðal annars við Hannes S. Jónsson, formann KKÍ, sem bað menn einfaldlega bara að virða gerða samninga. Í morgun birti Tindastóll svo yfirlýsingu þar sem þeir segja frá því að samkomulag hafi náðst við Grindavík um félagaskipti Sigtryggs sem leikur því með Grindavík á næstu leiktíð. „Vill stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls koma á framfæri þökkum til körfuknattleiksdeildar Grindavíkur fyrir að koma heiðarlega fram til að ná sáttum um félagsskipti leikmannsins og óskar Grindavík góðs gengis á komandi tímabili,” segir að lokum.Yfirlýsingin í heild sinni: Í ljósi frétta síðustu daga vill körfuknattleiksdeild Tindastóls koma eftirfarandi á framfæri. Samkomulag hefur náðst á milli körfuknattleiksdeildar Tindastóls og körfuknattleiksdeildar Grindavíkur sem heimilar félagsskipti Sigtryggs Arnars Björnssonar sem nú þegar hefur skrifað undir samning við Grindavík. Sigtryggur Arnar var einn af mikilvægari leikmönnum Tindastóls á síðasta tímabili og er mikil eftirsjá af leikmanninum. Stjórn Tindastóls vill þakka Sigtryggi Arnari fyrir frábært tímabil en harmar jafnframt þá ákvörðun leikmannsins að klára ekki samning sinn við liðið. Vill stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls koma á framfæri þökkum til körfuknattleiksdeildar Grindavíkur fyrir að koma heiðarlega fram til að ná sáttum um félagsskipti leikmannsins og óskar Grindavík góðs gengis á komandi tímabili. Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ Sport Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Fótbolti Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Fótbolti „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Handbolti Tíu leikmönnum bannað að koma til Bandaríkjanna Fótbolti Cantona á Ströndum: Leikur í kvikmynd á Hólmavík Fótbolti Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Körfubolti Besta sætið: Af hverju er ekki búið að semja við Snorra? Sport Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti Fleiri fréttir Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks „Þeir geta klárað þetta án mín“ Tekur tólf leikmenn með til Serbíu „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic Sjá meira