Ísland gefur kost á sér í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar 29. júní 2018 17:31 Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur aðsetur í Genf. Mynd/Stjórnarráðið
Samstaða hefur náðst í ríkjahópi Vesturlanda hjá Sameinuðu þjóðunum um að Ísland gefi kost á sér til að taka sæti Bandaríkjanna í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Við úrsögn Bandaríkjanna úr ráðinu losnaði eitt sæti og gert er ráð fyrir að Ísland verði eitt í kjöri í aukakosningum til ráðsins sem haldnar verða í allsherjarþinginu í næsta mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands.47 ríki sitja í ráðinu og þar af tilheyra sjö hópi Vestur-Evrópu og annarra ríkja. Fyrr í þessum mánuði sögðu Bandaríkin sig úr ráðinu og við það losnaði eitt af sætum Vesturlandahópsins. Fljótlega náðist samstaða um að Ísland gæfi kost á sér til að fylla sætið út tímabil Bandaríkjanna eða til ársloka 2019. Forsætisráðherra segir að Ísland hafi getið sér gott orð fyrir framgöngu sína í mannréttindamálum. „Ég er sannfærð um að nái Ísland kjöri eigum við eftir að standa fyllilega undir þeirri ábyrgð sem því fylgir að taka sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Ísland hefur getið sér gott orð fyrir framgöngu sína í mannréttindamálum, meðal annars höfum við beitt okkur fyrir jafnrétti kynjanna og réttindum hinsegin fólks svo eftir hefur verið tekið á alþjóðavísu,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Ísland í mannréttindaráði SÞ Mannréttindi Sameinuðu þjóðirnar Utanríkismál Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira