Blautt og hvasst á kjördag Stefán Ó. Jónsson skrifar 24. maí 2018 08:27 Hvort þessir vegfarendur fari gangandi á kjörstað um helgina verður ósagt látið. Vísir/eyþór
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði blautt á landinu næstu daga. Spáð er samfelldri úrkomu suðaustan- og austanlands í dag og einnig um tíma fyrir norðan. Þá má jafnframt búast við skúraleiðingum vestantil á landinu. Vindur mun jafnframt aukast eftir því sem líður á daginn og hitinn verður yfirleitt á bilinu 5 til 13 stig. Það verður svo „dæmigerð suðvestanátt með skúrum á morgun,“ eins og veðurfræðingur kemst að orði. Þó má búast við sólarglennum á milli skúraskýjanna. Einnig mun létta smám saman til norðaustanlands þar sem jafnframt mun hlýna örlítið. Næsta lægð er þó ekki langt undan með vaxandi suðaustanátt og rigningu um landið vestanvert annað kvöld. Áframhaldandi suðlægar áttir verða ríkjandi um helgina, hvasst á köflum og vætusamt sunnan- og vestanlands, en hlýtt og að mestu þurrt um landið norðaustanvert.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag:Sunnan 10-18 m/s og talsverð eða mikil rigning á sunnan og vestanverðu landinu og hiti 8 til 13 stig, en hægari suðaustlæg átt norðaustanlands, úrkomulítið og hiti 12 til 19 stig. Dregur hægt úr vindi um kvöldið. Á sunnudag:Sunnan og suðaustan 5-13 m/s, hvassast með suðvesturströndinni. Skýjað og rigning sunnan- og vestanlands, jafnvel talsverð um tíma en úrkomulítið austanlands. Hiti 8 til 17 stig hlýjast norðaustanlands. Á mánudag:Fremur hæg breytileg átt, skýjað með köflum og fremur hlýtt, en fer að rigna vestantil seint um kvöldið. Á þriðjudag:Suðaustlæg átt og rigning með köflum um landið vestanvert um morgunin en styttir upp síðdegis. Yfirleitt þurrt og bjart austantil en líkur á síðdegisskúrum. Áfram fremur hlýtt í veðri. Á miðvikudag:Útlit fyrir hæga suðlæga átt, og bjartviðri víða um land en líkur á síðdegisskúrum austantil. Milt í veðri
Kosningar 2018 Veður Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Sjá meira